Lífið

Góður smalahundur er toppurinn á til­verunni

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Linn Kristín Flaten, kennari á námskeiðinu, sem mikil ánægja var með.
Linn Kristín Flaten, kennari á námskeiðinu, sem mikil ánægja var með. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Það er fátt sem toppar það að eiga góðan smalahund segja þeir sauðfjárbændur, sem fóru með hundana sína á smalahundanámskeið hjá norskum smalahundaþjálfara á Hellu.

Námskeiðið fór fram hér í Rangárhöllinni við Hellu. Það heppnaðist einstaklega vel enda stóðu hundarnir og eigendurnir sig afbragðs vel. Námskeiðið var haldið í samvinnu Landbúnaðarháskóla Íslands og Smalahundafélags Íslands en um tvö tveggja daga námskeið var að ræða í Rangárhöllinni. Leiðbeinandinn, Linn Kristin frá Noregi er einstaklega fær í sínu fagi.

„Það er náttúrulegt eðli hundanna að umkringja fé og smala því til eiganda síns. Þeir hlaupa því til að sækja fé. Einnig reka þér fé á undan eiganda sínum. Það eru engin takmörk fyrir því, sem hundarnir geta gert,” segir Linn Kristin.

Það er ótrúlegt að sjá hundana vinna, þeir gera það svo vel, ekkert gelt og ekkert vesen, bara gengið í verkið eftir skipunum eiganda síns.

Það er fátt annað, sem toppar það hjá sauðfjáreigendum en að eiga góðan smalahund.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Mikil ánægja var með námskeiðið. En fengu hundarnir einhver verðlaun fyrir góða frammistöðu á námskeiðinu eða?

„Nei, en það eru verðlaun hjá þeim að fá að smala meira, það er alla jafna. Þeim finnst meira gaman að fá að smala heldur en að fá einhver sérstök verðlaun,” segir Elín Heiða Valsdóttir, sauðfjárbóndi í Úthlíð í Skaftártungu.

„Þetta var frábært námskeið, mjög gott námskeið, bara gott að fá svona fólk til landsins til að halda fyrirlestra og námskeið fyrir okkur,” segir Kristinn Hákonarson, bóndi á Móseli í Landsveit.

„Mér fannst þetta frábært námskeið, það er svo gaman að læra mismunandi aðferðir við að temja hunda,” segir María Weiss, bóndi í Vestur Meðalholtum í Flóahreppi.

„Ég er rosalega ánægð með þetta námskeið og að hafa þetta aðgengi að komast á námskeið með hundinn ef maður ætlar að reyna að gera þetta rétt, þá skiptir það öllu máli,” segir Eva Björk Kristborgardóttir, sem er búsett á Selfossi.

Hundarnir eru ótrúlega fljótir að læra að smala og taka við skipunum frá eigendum sínum.Magnús Hlynur Hreiðarsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.