Minnst 133 látnir og fjórir grunaðir handteknir Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 23. mars 2024 09:43 Árásin var gerð í Crocus tónleikahöllinni í Moskvu. AP Lögreglan í Rússlandi hefur handtekið ellefu í kjölfar skotárásarinnar sem gerð var í tónleikahöll í Moskvu í gærkvöldi. Fjórir þeirra handteknu eru grunaðir um aðild að árásinni, en í henni létust að minnsta kosti 133.
Rússneskir miðlar greina frá, í frétt Reuters kemur fram að af þeim ellefu sem handteknir voru væru fjórir hryðjuverkamenn og að leyniþjónusta Rússlands (FSB) ynni að því að ná haldi á fleirum sem grunaðir eru um að hafa framið árásina. Samkvæmt upplýsingum frá rússneskum yfirvöldum er fjöldi látinna kominn upp í 93. Þá eru yfir hundrað manns særðir. Fram kemur að árásarmennirnir hafi flúið af vettvangi í Renault bíl sem lögregla fann síðar í Bryansk héraði, um 340 kílómetrum suðvestan Moskvu. Tveir hafi verði handteknir og tveir reynt að flýja inn í skóg, en komust ekki undan. Þá segir að í bílnum hafi fundist skammbyssa, skothylki fyrir hríðskotariffil og vegabréf frá Tajikistan. Íslamska ríkið lýsti í gærkvöldi yfir ábyrgð á árásinni, sem er sú mannskæðasta í landinu frá árinu 2004, þegar byssumenn réðust inn í barnaskóla í Beslan og skutu 331 til bana. Skotárásin var gerð í Crocus tónleikahöllinni í Moskvu, en þar átti rokkhljómsveit frá tímum Sovíetríkjanna að spila um kvöldið. Fréttin hefur verið uppfærð.
Rússland Hryðjuverkaárás í Moskvu Mest lesið Grunaðir um að skiptast á að nauðga konu Innlent Krefja blaðamann Samstöðvarinnar um fimmtán milljónir Innlent Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins Innlent Demókratar uggandi yfir niðurstöðum skoðanakannana Erlent Vandasöm andlitslömun sem greinist vikulega á Íslandi Innlent Sviku út tugi milljóna með því að þykjast vera Brad Pitt Erlent Skutu viðvörunarskotum að norsku skipi í norskri lögsögu Erlent Erfið umræða sem fólk hafi veigrað sér við að taka Innlent Segir gagnrýni kvenna á leikskólastefnu Kópavogs tvískinnung Innlent Svandís gefur kost á sér og vill kosningar í vor Innlent Fleiri fréttir Þreföldun á endurnýjanlegri orkuframleiðslu innan seilingar Skutu viðvörunarskotum að norsku skipi í norskri lögsögu Demókratar uggandi yfir niðurstöðum skoðanakannana „Sterk Úkraína mun neyða Pútín að samningaborðinu“ Halda árásum áfram og beina sjónum að eldflaugastæðum Hezbollah Sviku út tugi milljóna með því að þykjast vera Brad Pitt Risavaxin mörgæs slær í gegn Um 500 látin í árásum Ísraela á Líbanon Ætlaði sér að ráða Trump af dögum Fólk flýr Beirút undan mannskæðum árásum Ísraela Selenskíj heimsótti lykilríki og þakkaði fyrir vopnin Flúði þegar sveitir Maduro ætluðu að grípa hann Fimmtán á sjúkrahús eftir lestarslys í Svíþjóð Starfsmenn flýja framboð Robinson eftir „svartur nasisti“-hneykslið Fjórir myrtir og fjöldi særður eftir skotárás í Alabama Ísraelar ráðast í umfangsmiklar loftárásir og hvetja íbúa til að flýja Rússar gerðir afturreka með óvæntar tillögur á allsherjarþingi SÞ Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Sjá meira