Snabbi og Bísamrottan eru nýjustu meðlimir Múmínkrúsanna Heimilistæki 6. mars 2024 10:22 Hinn alvörugefna heimspeking Bísamrottuna má nú loks sjá á krús. Snabbi er kunnuglegt andlit. Nýjustu meðlimir sígildu vörulínunnar frá Moomin Arabia nálgast lífið og tilveruna á ólíkan hátt. Hinn öra Snabba dreymir um frægð og frama; en hinni spekingslegu Bísamrottu þykir öll ólæti og ofgnótt tilgangslaus.
Snabbi er kunnuglegt andlit í línunni en hér birtist Bísamrottan í fyrsta sinn. Nýjar vörur komu á markaðinn um allan heim 5. mars. Langþráð Bísamrottan er loksins hluti af vörulínunni Hinn alvörugefni heimspekingur Bísamrottan er glæný persóna í sígildu línunni og á öllum Moomin Arabia borðbúnaði. Múmínaðdáendur hafa beðið lengi eftir að sjá vörur skreyttar litla nagdýrinu með yfirvaraskeggið. Bísamrottan birtist eingöngu í skáldsögum Tove Jansson Pípuhattur galdrakarlsins (útg. á sænsku árið 1948) og Halastjarnan (1946), hvorki síðar né í myndasögunum. Þess í stað var vinsældum sögupersónunnar haldið uppi með teiknimyndum í sjónvarpi. Nú nýlegast í teiknimyndaþáttunum, Múmínálfarnir, sköpuðum af Gutsy Animations (2019-), en þar hefur sögupersónan hlotið talsverðan skjátíma. Í sögum Jansson, birtist Bísamrottan sem ábúðarfullt gamalmenni sem líkar best að eyða tíma sínum í friðsamlegu einrúmi og ró, lesa bækur og velta fyrir sér stórum spurningum um tilveruna. Hana má ekki trufla svo auðvelt sé og skoðanir hennar má gjarnan túlka sem tilvistarstefnulegar. Lífsspeki hennar er best lýst með orðum hennar úr Pípuhatti galdrakarlsins: „Hve tilgangslaust það er að æða um í kjaftagangi, byggja hús og elda mat og sanka að sér veraldlegum eigum.“ Engu að síður, er ennþá sumt sem hreyfir við heimspekingnum. Þegar Bísamrottan fellur til jarðar úr uppáhalds bólinu sínu, hengirúmi í garði við Múmínhúsið, fylgir því auðmýkjandi sæmdarskellur. Verandi nú þegar þreytt á eirðarleysinu í Múmínhúsinu, flýr hún í strandhelli til þess að vera í einrúmi með hugsunum sínum. Þessi atburðarás er sýnd á borðbúnaði Bísamrottunnar. Innihald speki hennar er afhjúpað með titlinum á bókinni í kjöltu hennar: “The Uselessness of Everything” eða Tilgangsleysi alls. Snabbakrús og diskar með nýrri sögu Snabbi er kunnuglegt andlit í sígildu línunni, og settið í ár er í þriðja sinn sem hann birtist á borðbúnaði. Ólíkt Bísamrottunni, nálgast Snabbi lífið með óþrjótandi áhugasemi. Hann er einn besti vinur Múmínsnáðans, eins og lítill bróðir, og tekur óðfúslega þátt í öllu sem Múmínálfarnir taka sér fyrir hendur, þó ekki áfjáður í það sem gæti talist hættusamt. Bísamrottan telur svotil allt vera tilgangslaust, en Snabbi er draumóramaður sem girnist allt sem telst verðmætt eða sem glóir. Hann er sífellt að leita nýrra leiða til þess að verða ríkur. Í allra fyrstu myndasögu Jansson, Múmínsnáði (1954-1955), heimsækir fjöldinn allur ættingja og vina Múmínhúsið svo að Múmínsnáði kemst ekki lengur fyrir undir sama þaki. Snabbi hjálpar vini sínum Múmínsnáða að verða ríkur svo hann geti byggt sitt eigið hús. Við hliðina á Snabba er lítil vera sem kallast Skuggi. Hann er hjálpleg vera sem, líkt og nafnið gefur til kynna, eltir Snabba og Múmínsnáða út um allt. Síðustu sígildu myndskreytingarnar eftir Tove Slotte Báðar myndskreytingarnar af Snabba og Bísamrottu voru gerðar af Tove Slotte, sem settist í helgan stein árið 2022 eftir þrjátíu ár í starfi hjá Moomin Arabia. Myndskreytingarnar tvær eru þær síðustu í sígildu vörulínunni eftir þennan dáða hönnuð, en Múmín aðdáendur munu fá að njóta myndskreytinga hennar í öðrum Moomin vörulínum á komandi árum.Nýjar krúsir, diskar og skálar í sígildu línunni verða fáanlegar á heimsvísu frá 5.mars 2024 á ibudin.is og hjá öllumsöluaðilum Moomin Arabia í kjölfarið. Snabbi finnur upp á æskuseyði sem hann byrjar að selja í Múmíndal. Öllum að óvörum breytast þeir sem drekka seyðið í andstæðu sína – litlir verða stórir, gamlar konur verða gamlir karlar.Eins og sjá má á nýja borðbúnaðinum býður Snabbi skjaldböku upp á seyðið en hún breytist síðan í hraðlest. Á borðbúnaðinum má einnig sjá Snabba standa á ströndinni við sólsetur – þar sem hann að sjálfsögðu lætur sig dreyma um frægð og frama.
Hús og heimili Matur Mest lesið Bróðurinn grunaði að Hulda væri hálfsystir þeirra Lífið Óttast að Dimma hafi endað í gini tófunnar Lífið Enginn Logi á veggspjaldi Star Wars Bíó og sjónvarp Enn reið Tarantino vegna þess sem hann gerði íslenskum konum Lífið Verkefnið kom eins og þruma úr heiðskíru lofti og varð Daníel að þegja í heilt ár Lífið Spennandi breytingar í GK Reykjavík – verslunin flutt í Evu Lífið samstarf 50+: Það má segja Nei við barnapössun Lífið Er þetta hinn nýi hvíti karlmaður? Lífið Fór í hjartastopp eftir að hafa borðað 10.000 hitaeiningar á dag Lífið Tix.is um Bieber-miðasöluna: Of hratt hleypt inn í röðina Lífið Fleiri fréttir Spennandi breytingar í GK Reykjavík – verslunin flutt í Evu Jólagjafir sem gleðja hárið og hjartað Gerður Kristný, Andri Snær og Þórunn Valdimars meðal upplesara í kvöld Myndaveisla: Glæsileg frumsýning Zootropolis 2 í Kringlunni Fortíð og nútíð fléttuð saman í nýrri spennandi unglingasögu Vill að lesendur skemmti sér en verði samt skíthræddir Að lifa er að hlusta á þúsund sögur Slökkviliðin og vinsæll barnabókahöfundur leiða saman hesta sína Kostnaður listarinnar Spennandi unglingabók um samfélag í upplausn, samkennd og heitar tilfinningar Á Hvömmum er lífið allt nema einfalt Kenzen með 5 af topp 20 vörunum á Óskar appinu Fjörðurinn, húsið og leyndarmálin Græjaðu gjafalistann á góðum prís Snjallt pöntunarkerfi á hádegismat sparar vinnu, tíma og kostnað Ný vefverslun Slippfélagsins er paradís fyrir myndlistafólk Höfundar lesa í beinni í kvöld BRASA er nýr og glæsilegur veitingastaður í hjarta Kópavogs Birgitta Haukdal áritaði bækur í Smáralind Mannlega hlið fjármálanna kjörnuð í bókinni Sálfræði peninganna Eru geimverur meðal okkar? Tilbrigði við sannleika Myndaveisla: Klikkuð stemning í Eldhúspartýi FM957 Partyland fagnar tveggja ára afmæli með 20% afslætti alla vikuna Fyrsti íslenskumælandi bóndabærinn slær í gegn Einar Már, Sunna Dís og Sigrún Eldjárn lesa upp í kvöld Knútur vann graskerskeppni FM957 og Fjarðarkaupa Fegurðin og fjölbreytnin í krulluðu hári Nanna Rögnvaldar og Hallgrímur Helga lesa í kvöld Sól, borg, skíði og flug á einum stað Sjá meira