Bashar Murad vill í forsetaframboð Jakob Bjarnar skrifar 1. mars 2024 10:25 Bashar Turad og meðhöfundur hans Einar Hrafn Stefánsson. Gríðarleg spenna er að myndast vegna Söngvakeppninnar sem haldin verður á morgun. Bashar fann sér þó tíma til að tilkynna um framboð sitt til forseta. vísir/vilhelm Bashar Murad hyggst gefa kost á sér til embættis forseta Íslands, fái hann til þess stuðning hjá íslensku þjóðinni. Hann hefur þó hvorki aldur til framboðs né er hann íslenskur ríkisborgari.
Eða svo segir í tilkynningu sem Vísi var að berast úr herbúðum Bashars. Spennan virðist vera að nálgast hástig í tengslum við Söngvakeppnina en keppt verður til úrslita á morgun. Hefur hvorki aldur né ríkisborgararétt en vill axla ábyrgð Vert er að hafa bak við eyrað að engir möguleikar eru á framboði; Bashar hefur hvorki aldur sem til þarf né er hann með íslenskan ríkisborgararétt. Líta verður á framboðstilkynninguna í því ljósi. En það verður að segjast að harðlífi er hlaupið í hugsanlega frambjóðendur, margir nefndir en fáir útkallaðir og fáir virðast þora að stíga skrefið. Í tilkynningu kemur fram að Bashar hafi tilkynnt um þennan vilja sinn á opnum fundi í hljóðveri sínu í Reykjavík rétt í þessu. Bashar segir að ef sá sé vilji þjóðarinnar vill hann ekki víkjast undan því. „Þegar núverandi forseti Guðni Th. tilkynnti að hann ætlaði ekki að bjóða sig aftur fram þá stóð ég fram fyrir stórum ákvörðunum,“ segir Bashar. Hann segist feiminn en finna til ábyrgðar: „Menn hafa ekki bara komið að máli við mig. Ég hef komið að máli við sjálfan mig.“ Þjóðin þekki hann bara sem poppstjörnu og kúreka Forsetalegur Bashar Murad. Hann vill bætast í hóp forsetaframbjóðenda en ekki víst að honum verði kápan úr því klæðinu, til þess þyrfti að breyta stjórnarskrá. Í tilkynningu segir að stuðningsfólk Bashars sé þegar farið að tala um Bessastaði sem Basharstaði og notar óspart myllumerkið #Basharstaðir framboðinu til stuðnings á netheimum. Bashar segir að fólk myndi sjá aðra hlið á honum ef hann yrði kjörinn. „Þið mynduð sjá dálítið öðruvísi Bashar,“ segir hann, en þjóðin þekkir hann nú sem poppstjörnu og kúreka. En hann búi að reynslu og fátt komi honum úr jafnvægi. „En á hinn bóginn myndi ég líka vera þess konar forseti held ég að ég myndi segja sem svo að það á að færa forsetann að fólkinu. Eða fólkið að forsetanum,“ segir hann. Meðal þess sem Bashar vill gera er að skera niður ferðalög og dagpeningakostnað og nýta frekar peninginn í að gefa fólkinu kost á að heimsækja forsetann á Bessastöðum.
Eurovision Forsetakosningar 2024 Grín og gaman Tónlist Tengdar fréttir Hera og Bashar afdráttarlaus og ætla í Eurovision Söngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir, sem er meðal þeirra fimm sem keppast um að verða fulltrúi Íslands í Eurovision, ætlar til Svíþjóðar í lokakeppnina standi hún uppi sem sigurvegari í Söngvakeppninni. Palestínumaðurinn Bashar er á sama máli. 26. febrúar 2024 02:10 Bashar er lifandi flagg í sjálfu sér „Síðan að ég var krakki hefur mig langað að komast á stóra sviðið og deila því sem ég vil segja með heiminum í gegnum tónlist,“ segir tónlistarmaðurinn Bashar Murad. 10. febrúar 2024 07:01 Mest lesið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Sögulegt parhús í Hlíðunum Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara strax og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira
Hera og Bashar afdráttarlaus og ætla í Eurovision Söngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir, sem er meðal þeirra fimm sem keppast um að verða fulltrúi Íslands í Eurovision, ætlar til Svíþjóðar í lokakeppnina standi hún uppi sem sigurvegari í Söngvakeppninni. Palestínumaðurinn Bashar er á sama máli. 26. febrúar 2024 02:10
Bashar er lifandi flagg í sjálfu sér „Síðan að ég var krakki hefur mig langað að komast á stóra sviðið og deila því sem ég vil segja með heiminum í gegnum tónlist,“ segir tónlistarmaðurinn Bashar Murad. 10. febrúar 2024 07:01