Lífið

Patti og Bassi börðu á hvor öðrum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bassi og Patti fóru mikinn í hringnum.
Bassi og Patti fóru mikinn í hringnum.

Í raunveruleikaþættinum Æði á Stöð 2 í gærkvöldi fór Æðihópurinn í Boxkennslu í World Class.

Strákarnir virtust skemmta sér vel en Patrekur Jaime og Bassi Maraj voru í sérflokki í hópnum. Þar var ekkert gefið eftir og menn létu finna fyrir sér.

Patrekur var ívið betri en Bassi í þeirra bardaga og lét högginn hreinlega dynja á vini sínum.

Patti endaði síðan á því að berjast við Eriku Nótt Einarsdóttur sem er 16 ára Íslandsmeistari í boxi. Það fór ekki svo vel fyrir Patrek.

Hér að neðan má sjá brot úr þætti gærkvöldsins en áskrifendur geta horft á alla þættina af Æði á Stöð 2+.

Klippa: Æðigengið í boxi





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.