Svissneskur landsliðsmaður í B-deildarliði Ármanns Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. febrúar 2024 16:31 Laurent Zoccoletti í verkefni með svissneska landsliðinu. Fiba.basketball Það eru ekki bara leikmenn úr Subway deild karla í körfubolta sem eru uppteknir með landsliðum sínum í þessum landsliðsglugga.
1. deildarlið Ármanns horfði líka á eftir leikmann sínum í landsliðsverkefni. Laurent Zoccoletti, leikmaður Ármanns, var valinn í svissneska landsliðið fyrir komandi leiki í forkeppni HM 2027. „Við erum gríðarlega stolt af okkar manni sem hefur komið sér til baka eftir erfið meiðsli og hefur verið virkilega öflugur með okkur Ármenningum upp á síðkastið,“ segir í frétt á miðlum Ármanns. Laurent fór frá Íslandi á sunnudaginn þar sem hann hélt til æfinga með svissneska landsliðinu. Sviss mætir Aserbaísjan og Írlandi í undankeppni HM á morgun og sunnudag. Ármenningar hafa vegna landsliðsvals Zoccoletti látið færa leik ÍR og Ármanns í 1. deildinni en hann átti að fara fram næstkomandi föstudag. Hann hefur verið færður til mánudagsins 11. mars. Zoccoletti hefur spilað þrettán deildarleiki með Ármanni í vetur og í þeim er hann með 12,0 stig og 10,5 fráköst að meðaltali í leik. Hann er einnig með 1,5 stolinn bolta og 1,1 varið skot í leik. Í síðasta leik var Zoccoletti með 19 stig, 10 fráköst og 5 stoðsendingar á móti toppliði Fjölnis en Ármann er bara í tíunda sæti af tólf liðum. View this post on Instagram A post shared by A rmann karfa (@armannkarfa)
Sviss Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira