Ekkjan gafst ekki upp og fékk meirihluta dánarbótanna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. febrúar 2024 14:50 Eins og sést á mynd sem birt var í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa var aftari stýrispinni festur með sætisbelti. Flugvélin fór í loftið með stýrispinnann læstan sem orsakaði slysið hræðilega. RNSA Ekkja flugmanns sem lést í flugslysi á Rangárvöllum sumarið 2019 fær tvo þriðju dánarbóta frá tryggingafélaginu. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur. Tekist var á um hvort flugmaðurinn hefði sýnt af sér stórfellt gáleysi sem orsakaði slysið.
Það var 27. júlí sumarið 2019 sem efnt var til flugsýningar á Haukadalsmelum. Þar fór flugvél í bratt klifur eftir flugtak og steyptist til jarðar með þeim afleiðingum að 64 ára reyndur flugmaður og -kennari lést. Flugvélin var tryggð hjá Beta Aviation ApS og reyndi ekkja flugmannsins að sækja dánarbætur til tryggingafélagsins. Félagið greiddi ekki bæturnar strax heldur beið eftir gögnum úr rannsókn lögreglu og skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Gætti ekki að stýrislæsingu Rannsóknarnefnd samgönguslysa komst að þeirri niðurstöðu við rannsókn sína að flugmaðurinn hefði ekki framkvæmt nógu vandaða skoðun á vélinni fyrir flugtak og ekki gætt að því að stýrislæsing var á. Vélin var heimasmíðuð og í sameiginlegri eigu tíu flugmanna, meðal annars þess sem lést. Að sögn nokkurra eigenda voru stjórnfletir vélarinnar viðkvæmir fyrir vindi og tíðkaðist að læsa hæðarstýri og hallastýri flugvélarinnar með því að festa stýripinna við aftara sætið í öftustu stöðu við sætið með því að strekkja sætisbelti sætisins utan um stýripinnann. Fór hann því í loftið með stýripinna læstan sem orsakaði slysið. Í ljósi þessa sagði tryggingafélagið að flugmaðurinn hefði sýnt af sér stórfelld gáleysi. Því fengi ekkjan engar bætur. Hún gafst þó ekki upp í baráttunni við tryggingafélagið og leitaði með bótakröfu sína til dómstóla. Sannarlega stórfellt gáleysi Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem skipaður var tveimur dómurum og flugstjóra sem sérfróðum meðdómanda, kemur fram að enginn vafi sér á því að háttsemi flugmannsins hafi orsakað slysið. Enginn annar geti talist meðábyrgur. Lögmaður ekkjunnar og tryggingafélagsins tókust á um það fyrir dómi hvort um stórfellt gáleysi hefði verið að ræða. Sú háttsemi flugmannsins heitins að kanna hvorki stjórntæki vélarinnar við fyrirflugskoðun né rétt áður en tekið var á loft yrði að meta honum til stórfellds gáleysis. Ábyrgð tryggingafélagsins félli þó ekki niður vegna þessa eins og tryggingafélagið héldi fram en gæti skert bætur að hluta eða heild. Varðandi rétt ekkjunnar til bóta yrði að líta til fjögurra þátta hvort og þá í hve miklum mæli ætti að lækka ábyrgðina. Til sakar stefnda, hvernig atburðinn bar að, hvort viðkomandi hefði verið undir áhrifum og atvika að öðru leyti. Vélin í stöðugri notkun Héraðsdómur leit til þess að auk þess að hafa ekki farið yfir gátlista og handbók vélarinnar hefði flugmanninum, reynslubolta í faginu, átt að vera ljóst mikilvægi þess að kanna ástand stýritækja vélarinnar fyrir flugtak. Með þeim sjálfsögðu og einföldu ráðstöfunum hefði mátt koma í veg fyrir tjónið. Á hinn bóginn bæri að taka tillit til þess að þegar vélin var í stöðugri notkun eins og á þessum degi var ekki endilega gengið frá stýrislæsingum á milli einstakra flugferða. Flugmaðurinn hefði sjálfur verið nýkominn úr flugi í annarri vél þar sem hann læsti ekki stýrum eftir notkun enda stóð til að annar flugmaður flygi henni strax. Einungis fimm mínútur hefðu liðið frá því að annar flugmaður flaug vélinni sem fórst og þar til flugmaðurinn settist upp í vélina og af stað með hörmulegum afleiðingum. Stýrislæsingar séu hafðar í áberandi lit til að auðvelda flugmönnum að koma auga á þær í fyrirflugsskoðun. Sætisbelti séu ekki stýrislæsing og hætta á að flugmaður taki ekki eftir þeim ef þau eru notuð sem slík. Þá sýndu rannsóknir á blóð- og þvagsýni eftir slysið engin merki um alkóhól í blóði hans. Rifjuðu upp slys á Vopnafirði 2009 Héraðsdómur taldi rétt að skerða dánarbæturnar um einn þriðja og horfði meðal annars til dóms Hæstaréttar frá 2016 í bótamáli karlmanns sem slasaðist alvarlega í banaslysi á Vopnafirði árið 2009. Þar voru bætur skertar um helming en þar hefði gáleysið verið meira. Fékk konan því tvo þriðju af 11,4 milljónum króna eða 7,6 milljónir króna í dánarbætur með dráttarvöxtum frá árinu 2020.
Flugslys að Haukadalsmelum Fréttir af flugi Tryggingar Dómsmál Mest lesið Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Hvers vegna að fella ísbirni? Innlent Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Innlent Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Erlent Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Erlent Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið Innlent Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Innlent Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Innlent Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Innlent Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila Innlent Fleiri fréttir Hvers vegna að fella ísbirni? Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Áfram í varðhaldi fyrir að ræna og hóta ungmennum Fjölskylda flugmanns vill að lögregla rannsaki andlát hans Sýndi lögreglu löngutöng og var ekinn út af Svanhildur afhenti Biden trúnaðarbréf Loka almenningsbókasafninu og leita til Akureyrar Búið að taka sýni úr ungu birnunni Vinna málið saman og nýta greinargerð vegna fyrri umsóknar Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Stofna námsstyrk á sviði umhverfismála í nafni Ellýjar Hafa „góða hugmynd“ hvar og hvenær stúlkunni var ráðinn bani Maður sem var leitað við Vík fannst látinn Ákvörðun ráðherra viðurkenning á að mikil þekking sé fyrir norðan Biðin óásættanleg og vill skýr svör frá ríkinu Hinir grunuðu í mansalsmálinu ganga lausir Sveitarfélögin krefja ríkið svara um NPA Norðurlönd dýpka samvinnu í varnarmálum Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Bein útsending: Birting lýðheilsuvísa í Grindavík Skerjafjarðarskáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Húnninn settur í frost þar til hægt verður að stoppa hann upp „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Sjá meira