Lífið

Heimsfrumsýning í Gamla bíó: „Þetta var eins og að koma á vett­vang glæps“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Frá mótmælum gegn laxeldi á Austurvelli.
Frá mótmælum gegn laxeldi á Austurvelli.

Viðamikil dagskrá fer fram annað kvöld í Gamla bíó þegar heimildarmynd um fiskeldi á Íslandi, Laxaþjóð, verður heimsfrumsýnd. Myndin er framleidd af bandaríska útivistarvöruframleiðandanum Patagonia.

„Við lentum eiginlega í miðjum látunum út af sleppingunni en fengum fyrir vikið magnaðan kafla í myndina sem höfðum ekki gert ráð fyrir enda tökudagar á Íslandi planaðir löngu áður en fiskurinn slapp,“ segir Arthur Neumeier leikstjóri heimildarmyndarinnar í tilkynningu.

Þar kemur fram að myndin hafi verið tekin upp síðastliðið haust. Tökuliðið hafi lent í óvæntri atburðarás þegar sleppifiskur úr sjókví Arctic Fish tók að ganga í ár um allt land.

„Þetta var eins og að koma á vettvang glæps þar sem sönnunargögnin streymdu fram upp á yfirborðið. Norsku froskkafararnir með skutulbyssurnar komu rétta á eftir okkur til landsins,“ segir Arthur sem er Hollendingur en búsettur í Suður-Afríku.

Viðhafnardagskrá í Gamla bíó

Í tilkynningunni kemur fram að frumsýning myndarinnar í Gamla bíó annað kvöld verði miðpunktur fjölbreyttar dagskrár kvöldsins. Fyrir sýningu mun Veiga Gréttarsóttir flytja erindi og sýna ljósmyndir og myndskeið sem hún hefur tekið í við við sjókvíar

Þá kemur tónlistarkonan GDRN fram. Eftir sýninguna verða svo panelumræður um efnið og kvöldinu lýkur með DJ setti þriggja meðlima FM Belfast.

Segir viðvaranir orðnar að veruleika

„Við erum með 50 ára sögu um óbilandi áherslu á umhverfisvernd og áttum okkur fyllilega á að heilbrigði náttúrunnar og hagkerfis okkar eru samofin,“ segir Ryan Gellert, forstjóri Patagonia um myndina í tilkynningu.

Gellert mætti hingað til lands árið 2019 og afhenti undirskriftir 180 þúsund manns um allan heim með áskorun til íslenskra stjórnvalda um að hætta laxeldi í opnum sjókvíum.

„Þann dag stóð ég við hlið íslenskra fulltrúa veiðifélaga og grasrótarsamtaka. Við vonuðumst öll til þess að enn væri tími til að snúa við skaðanum á óspilltum líffræðilegum fjölbreytileika Íslands og þar með framtíð þess.“

Gellert segir að undanfarin fjögur ár hafi hann fylgst með því hvernig allt það sem umhverfisverndarsinnar hafi varað við hafi ræst. Ástandið fyrir lífríki Íslands og villta laxastofna verði sífellt alvarlegra.

„En ég vona, vegna þess að ég hef trú á framtíðarsýn og hugrekki íslenskra stjórnmálamanna og Íslendinga almennt, til að standa vörð um náttúruna ykkar, stolt þjóðarinnar, að það verði brugðist við og opið sjókvíaeldi bannað áður en það verður of seint,“ segir Ryan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.