Píratar festast ekki bara á klósettinu Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 23. janúar 2024 15:00 Arndís Anna K. Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, festist á klósettinu á Kíkí árið 2023. Árið 2024 festist hún í lyftu með þingflokksfélögum sínum. Vísir/Vilhelm Fótboltakempur á Kaffibarnum, píratar fastir í lyftu og utanríkisráðherra á Kjarval. Já, það gengur á með meiru en frosti á okkar blessaða landi þar sem frægir eru iðullega á ferðinni.
Gísli Rafn Ólafsson þingmaður pírata birti mynd af sér með bjargvættinum í Tollhúsinu. Þingflokkur Pírata gerði sér ferð í Tollhúsið í síðustu viku til að hitta fyrir Grindvíkinga í miðstöð sem komið var upp á þessum erfiðu tímum fyrir bæjarfélagið. Þingmennirnir urðu fyrir þeirri miður skemmtilegu lífsreynslu að festast í lyftu í heimsókn sinni. Sannast það forkveðna að píratar festast víðar en á klósettinu en meðal þingmannanna var einmitt Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir sem átti án nokkurs vafa frægustu klósettferð síðasta árs. Öll komust þau út að lokum fyrir snör handtök Ingólfs Haraldssonar björgunarsveitarmanns. En svo kom helgin og þá skellir fólk sér út á lífið. Það gerðu Stefán John Turner tískugúru og Tanja Ýr Ástþórsdóttir fegurðardrottning sem skemmtu sér vel á Tipsý. Rómantíkin var allsráðandi hjá parinu Andra Jóhannessyni þyrluflugmanni og Júlíönu Söru Gunnarsdóttur leikkonu á Röntgen. Viðar Örn Kjartansson knattspyrnumaður var í banastuði á næturvaktinni á Kaffibarnum. Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins og Jakob Frímann Magnússon stóðu vaktina ekki alveg jafnlengi á föstudagskvöldið. Þeir nutu vel eins og fleiri á Kjarval þangað sem aðeins áskrifendur og gestir komast inn. Uppi varð fótur og fit í Kolaportinu á laugardaginn þegar gestir töldu knattspyrnukappann Mo Salah vera að kynna sér allan þann fisk og notuðu föt sem í boði eru í portinu. Nánari eftirgrennslan leiddi í ljós að Salah er við keppni á Afríkumótinu í fótbolta og því fjarri góðu gamni, mögulega bara í betra gamni. Ein móðirin var svo sannfærð að hún bað viðkomandi að stilla sér upp á mynd með barni sínu. Sá tók bara vel í það, kannski öllu vanur enda ekki leiðum að líkjast. Mo Salah er fyrirliði Egyptalands sem spilar í Afríkukeppninni í fótbolta sem nú stendur yfir.Vísir/Getty Jóhannes Haukur Jóhannesson stórleikari þekkir skemmtanalífið í Reykjavík vel, allavega á árum áður þegar hann var einn afkastamesti trúbbi landsins og fastagestur á Ara í Ögri, þar sem hún er Danski barinn. En tímarnir breytast og mennirnir með. Jóhannes pabbi Jóhannesson stóð vaktina á fótboltamóti í Kórnum á sunnudeginum. Fleiri leikarar voru á sportlegri nótunum og sást Gísli Örn Garðarsson á sundskýlunni í Sundhöll Reykjavíkur. Æfingar á Frosti standa yfir í Þjóðleikhúsinu og nauðsynlegt að hita kroppinn á móti í hlýrri laug. Skemmtikrafturinn Maggi Mix nærði sig á Joe and the Juice í Kringlunni. Þar voru Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins og fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Sigríði Hjálmarsdóttur, menningar- atvinnu- og markaðsfulltrúa Hveragerðisbæjar, kona hans voru einnig á vappinu í verslunarmiðstöðinni. Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins og fyrrverandi borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins.Vísir/Vilhelm Inga Lind Karlsdóttir og Heimir Karlsson, þó ekki systkini, fögnuðu tuttugu árum Heimis í Bítinu á Bylgjunni. Heimir byrjaði ferilinn einmitt með Ingu Lind sem mætti sem leynigestur í Bítið í gær af því tilefni. Friðrik Ómar er svo mættur til landsins frá Flórída. Úr hitanum í kuldann gæti verið heitið á nýju lagi kappans sem flytur í Borgarnes um mánaðamótin.
Frægir á ferð Píratar Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira