Skoðun

Mann­réttindi allra kvenna

Stella Samúelsdóttir skrifar

Á alþjóðlega mannréttindadeginum sem er í dag 10. desember fögnum við 75 ára afmæli mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Hún er enn í dag undirstaða alþjóðlegs mannréttindakerfis okkar og grundvöllur alþjóðlegra mannréttindasamninga sem ríki heims hafa skuldbundið sig til að byggja á.

UN Women á Íslandi vill árétta að UN Women stendur með mannréttindum allra kvenna og stúlkna, alltaf og alls staðar. UN Women er alþjóðleg mannréttinda- og mannúðarstofnun og eina stofnun Sameinuðu þjóðanna sem vinnur eingöngu í þágu jafnréttis.

Sundrungin sem við sjáum svo víða hefur aukist og ógnar bæði lýðræði og alþjóðasamstarfi. Gildi UN Women eru enn sem fyrr gagnsæi, hlutleysi, ábyrgð og virðing fyrir sáttmálum Sameinuðu þjóðanna og alþjóðalögum. Starf UN Women hefur líklega aldrei verið jafnmikilvægt og á tímum sem þessum þegar við verðum ítrekað vitni að því að konur missa áunnin réttindi sín á einu augabragði, þar sem upplýsingaóreiðu og falsfréttum, sem við höfum svo sannarlega ekki farið varhluta af um okkar eigin störf, er beitt í áróðursskyni gegn mannréttindum og vopnuð átök færast í vöxt. Fleiri en 108 milljónir voru á flótta í heiminum í lok árs 2022. Þessi tala er nú orðin enn hærri vegna átakanna í Súdan og Gaza og mun halda áfram að hækka á næstu árum m.a. vegna áhrifa loftslagsbreytinga og þverrandi auðlinda.  

UN Women á Íslandi ítrekar að allar konur og stúlkur, þar með taldar konur og stúlkur í Ísrael og Palestínu, eiga rétt á lífi án ofbeldis. Kynbundið ofbeldi er gróft brot á mannréttindum kvenna og stúlkna sem verður að uppræta. Við vitum að kynbundnu ofbeldi og nauðgunum er alltof oft beitt sem vopni í stríðsátökum. UN Women tekur undir ákall framkvæmdastjóra SÞ um að rannsaka þurfi allar fregnir um að kynbundnu ofbeldi hafi verið beitt í átökum og gerendur í slíkum málum sóttir til saka. Þá er mikilvægt að þolendur hljóti viðeigandi aðstoð og að réttindi þeirra séu tryggð.

UN Women hefur hvað eftir annað kallað eftir vopnahléi og friði í Palestínu og Ísrael og að alþjóðalög séu virt í hvívetna. UN Women hefur einnig krafist þess ítrekað að öllum gíslum verði sleppt og að neyðaraðstoð fái að berast óhindrað til Gaza. UN Women styður við störf óháðrar rannsóknarnefndar á vegum Sameinuðu þjóðanna sem hefur til rannsóknar mannréttindabrot og brot á alþjóðalögum, þar með talið tilkynningar um kynbundna ofbeldisglæpi. Þessi nefnd hóf störf skömmu eftir árásir Hamas í Ísrael 7. október sl.

Með þessi gildi að leiðarljósi og með ykkar stuðningi munum við saman halda áfram að vinna í þágu mannúðar og jafnréttis um allan heim.

Höfundur er framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×