Hjálmar Örn fimmtugur
Eva Ruza Miljevic sendi vini sínum og skemmtikraftinum, Hjálmari Erni Jóhannessyni, hjartnæma kveðju í tilefni fimmtugs afmæli hans á dögunum.
„Lífið með eitt stykki Hjálmar í rassvasanum getur tekið gríðarlega á get ég sagt ykkur, en ég mundi engu vilja breyta við manninn.
Þó að ég þurfi stundum að minna hann (mjög oft) á allskonar hluti þá klikkar hann aldrei.
Hjálmar er maðurinn sem allir þyrftu að eiga að sem vin. Hrósar endalaust, lætur allt vesen sem vind um eyru þjóta og er alltaf léttur og ljúfur.
Hliðarsjálfið hans, DJ Youtube, hendir eiginlega alltaf bara í geggjaða hittara fyrir utan eitt og eitt lag sem ég fæ ofnæmiskast yfir, en ég læt það slæda.
Til hamingju með afmælið elsku bestasti vinurinn minn. Lífið án þín væri ekki jafn skemmtilegt og ég hlakka til eldri áranna þegar við verðum farin að gigga á Kanarí. Þú með skemmtarann og ég að syngja.
Ljósa og Siggi verða pottþétt að horfa á okkur. Jafnvel þau einu, en það er alltílæj,“ skrifaði Eva og birti skemmtilegt mynd af þeim.
Bleikur föstudagur
Síðastliðinn föstudag var fólk kvatt til að klæðast bleiku til að vekja athygli á baráttunni gegn brjóstakrabbameini.
„Dásamlegasta gigg ársins var í gær“
Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson skemmti á 20 ára afmælishátíð, List án landamæra.
Ánægð með ræktarlífið
Förðunarfræðingurinn og áhrifavaldurinn Lilja Gísla birti mynd af sér í ræktinni.
Lítil listakona
Dóttir listaparsins, Maríu Birtu Bjarnadóttur og Ella Egilssonar, Ignacia tveggja ára, málaði listaverk með pabba sínum.
Edda Falak Íslandsmeistari
„Skvís varð Íslandsmeistari um helgina í -64kg hvítbeltingaflokki kvenna. Ég hef verið að taka mér langa pásu frá samfélagsmiðlum og ætla reflecta á það aðeins seinna, langaði bara að koma hingað inn og monta mig.
Í bili: Mikilvægasta sem ég hef lært hingað til er að lífið er ekki að bregðast okkur þegar það er erfitt, það skuldar okkur ekkert, það er bara hannað til að vera stundum erfitt og stundum æðislegt.
Við getum nýtt það góða miklu betur þegar okkur tekst að taka lífinu eins og það er, sem er stundum erfiðara verkefni fyrir suma en aðra,“ sagði Edda og birti mynd af sér og kærastanum, Kristjáni Helga Hafliðasyni.

Halloween förðun
Nýlega einhleypa samfélagsmiðlastjarnan Embla Gabriela Wigum birti mismunandi myndbönd af Halloween förðun þar sem hátíðin er næsta leiti.
Flottar í hvítum samfestingum
Hjónin María Rut og Ingileif Friðriksdóttir voru í stíl um helgina.
Jón og Æði-strákarnir
Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson og Æði-strákarnir fóru með stórleik í þriðja þætti IceGuys á dögunum.
Berglind x2
Berglind Festival birti mynd af sér með bestu vinkonu sinni, sjálfri sér.
Afmælisgleði
Birgitta Líf Björnsdóttir fagnaði 31 árs afmæli sínu á dögunum á Fjallkonunni í góðra vinkona hópi. Meðal gesta voru Sunneva Einars, Pattra Sriyanonge, Ásthildur Bára, Alexandra Helga og Hildur Sif Hauksdóttir.
Ást í Amsterdam
Sunneva Einars og Benedikt Bjarnason fóru í paraferð til Amsterdam.
Húðflúr tileinkað eiginkonunni
Bubbi Morthens bætir við húðflúri tileinkað eiginkonu sinni Hrafnhildi, „fallegust.“
Haust í Liverpool
Gummi kíró klæddist haustlitunum í Liverpool um helgina.
Fimm kvenkyns flugstjórar
Margt var um manninn i svokölluðu flugstjórapartíi um helgina þar nýr hópur flugstjóra Icelandair bjóða áhöfninni til samfagnaðar, ekki á vegum félagsins. Í sumar hófu 28 nýir flugstjórar störf, þar af fimm konur.
Aron Can hélt uppi stuðinu sem fór fram í sal Fram, Safamýri.



