Lífið

Ágústspá Siggu Kling: Þakkaðu fólkinu þínu

Sigga Kling skrifar
vatnsberinn

Elsku Vatnsberinn minn, nú er að snúast flæðið þitt og það byrjaði þegar fullt tungl var í vatnsbera merkinu þann fyrsta ágúst.

  • Vatnsberinn er frá 20. janúar til 18. febrúar.

Þér líkar miklu betur við ákvarðanir þínar í dag og þér líkar líka miklu betur við sjálfan þig og þínar skoðanir.

Auðvitað eru alltaf einhverjar áskoranir í kringum þig í þessum mánuði en þú lætur þér fátt um það finnast og það leysir sig sjálft. 

Það er nefnilega þannig að þegar maður er búin að að ganga í gengum svo margt, margar áskoranir, marga veggi, þá hefur það minni áhrif á mann þó svo að eitthvað gerist. Allt sem að tengist ástríðu þinni og áhuga eflist. 

Þú sérð að þú hefur stigið nokkur feilspor á þessu ári en það þurfti að gerast til þess að móta karakterinn þinn og sýna þér hvað þú getur. Þú átt marga og góða vini sem er ALLS ekki sjálfgefið. Þú virðist fá svo rétt og sterk ráð frá fólkinu í kringum þig og mætir lífinu með bros á vör. 

Klippa: Ágústspá Siggu Kling - Vatnsberinn

Þú getur nefnilega öllu breytt, en engu breytt ef þú gerir ekki neitt. Þú er fyrirmynd margra svo talaðu hreint út og þakkaðu fólkinu þínu fyrir að standa svona þétt við bakið á þér. 

Og þó að hafi verið uppgjör, viðskilnaður við manneskju sem stóð nálægt hjarta þínu þá er það akkúrat ástæðan sem gefur þér nýja möguleika til að magna mátt þinn. 

Það eru örlög þín að sækjast eftir ást og virðingu en gætu verið mistök þín að peningar skipti þig svona svakalega miklu máli. 

Það er sterkur kraftur yfir heimilinu þínu, þú gerir það svo fallegt þú herðir á sjálfs aga og verður stoltur af sjálfum þér.

Knús og kossar

Sigga Kling

  • Hilmir Snær Guðnason, leikari, 24. janúar
  • Volodymyr Zelenskyy, forseti Úkraínu, 25. janúar
  • Ellen Degeneres, grínisti 26. janúar
  • Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, 26. janúar
  • Paul Newman, leikari, 26. janúar
  • José Mourinho, þjálfari í knattspyrnu, 26. janúar
  • Oprah Winfrey, sjónvarpskona, 29. janúar
  • Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, 1. febrúar
  • Christiano Ronaldo, knattspyrnumaður, 5. febrúar
  • Yoko Ono, mynd- og tónlistarkona, 18. febrúar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.