Lífið

Ágústspá Siggu Kling: Taktu áhættu í ástinni

Sigga Kling skrifar
sporddreki

Elsku Sporðdrekinn minn, það er svo stórkostlega merkileg orka í kringum þig og þó að þú sért eina merkið í dýrahringnum sem er með hala og getur spýtt eitri úr halanum á sér að þá er eins og þú hafir marga hala.

  • Sporðdrekinn er frá 24. október til 21. nóvember.

Það er eins og allt sem þú gerir margfaldist og að þú nýtir hæfileikana þína miklu miklu betur, það eina sem getur breytt því er að þú stingir sjálfan þig og fyllist af svo mikilli vorkunnsemi yfir því hvernig hlutirnir eru.

Vorkunn gerir þig vanmáttugan og kraftlausan. Á því tímabili sem þú ert að fara í gegnum þá verður þér boðið ýmis hlutverk í lífinu gerðu það sérstaklega sem þú þorir ekki að gera, segðu já við því sem að býðst þér, því þar opnast leiðin, leggðu áhersluna á JÁ. 

Ef þér finnst að harmur hafi kverkatak á þér, farðu þá út úr því svæði sem þér aðallega líður þannig , færðu þig til, þú ert ekki tré, mundu það.

Klippa: Ágústspá Siggu Kling - Sporðdreki

Taktu áhættu í ástinni, þú þarft að leika þér meira taka lífið ekki of alvarlega, þú kemst hvort sem er ekki lifandi frá því. Þú ert að eflast og útgeislun þín að verða miklu tærari og þetta er svo magnað haust svo ekki eyðileggja neitt fyrir sjálfum þér með leiðinda athugasemdum við þig sjálfan.

Heldur skaltu leita leiða og gera allt sem þú þarft eða getur til að bjóða hamingjunni heim. Ef súkkulaði lætur þér líða betur þá fáðu þér súkkulaði og svo framvegis, allt sem lætur þér líða betur, hvað sem það er, hjálpar þér áfram á þessu dásamlega tímabili. Og útkoman er viðurkenning og gott umtal.

Knús og kossar

Sigga Kling

  • Bill Gates, stofnandi Microsoft, 28. október
  • Þórólfur Guðnason, 28. október
  • Winona Ryder, leikkona, 29. október
  • Kendall Jenner, raunveruleikastjarna, 3. nóvember
  • Leonardo Dicaprio, leikari, 11. nóvember
  • Whoopi Goldberg, leikkona, 13. nóvember
  • Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, 20. nóvember
  • Björk Guðmundsdóttir, 21 nóvember





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.