Lífið

Ágústspá Siggu Kling: Leyfðu öðrum að komast að

Sigga Kling skrifar
ljon

Elsku Ljónið mitt, það er sko hægt að segja að lífið sé búið að vera allskonar hjá þér undanfarið og þá er það alltaf spurning á hvað þú horfir eða hvað þú tekur inn af þessu allskonar.

  • Ljónið er frá 23. júlí til 22. ágúst.

Þú færð og hefur alla þá hjálp og aðstoð sem þú villt hafa í kringum þig og sýndu bara þá vitund að skilja engan eftir ósáttan í kringum þig. Þó að þú getir sýnt fólki í tvo heimana sem á það jafnvel svo sannarlega skilið skaltu alveg sleppa því. Framinn er þér mjög mikilvægur og kannski einum of. 

Byggðu kraftinn þinn upp úr því sem þú ERT, en ekki af því sem þú afrekar. Þú átt eftir að hrósa happi því að þú hefur unnið þér það inn að lífið brosi meira við þér. Ekki taka smáatriði og smámuni of nærri þér því þú ert að styrkja þig akkúrat með því að einblína á hina stóru lífsmynd sem að er að birtast þér. 

Klippa: Ágústspá Siggu Kling - Ljónið

Sannleikurinn skiptir höfuð máli og það er eins og þú fáir að vita meira en þú bjóst við. Sýndu það og sannaðu að þú ert bestur í samskiptum settu ljóns-þrjóskuna til hliðar og leyfðu öðrum að komast að.

Ástin er að byggja þig upp og ef þú ert að leita af þínum lífsförunaut þá skaltu muna það að hleypa ekki inn í líf þitt stress og streitu valdandi manneskju sem gæti gert þig vitlausan. 

Sú hindrun sem er fyrir framan þig mun beina þér á rétta braut því alheimurinn er að vinna í þínum málum.

Knús og kossar

Sigga Kling

  • Daniel Radcliffe, leikari, 23. júlí
  • Sigríður Beinteinsdóttir, söngkona, 24. júlí
  • Sandra Bullock, leikkona, 26. júlí
  • Birgitta Haukdal Brynjarsdóttir, söngkona, 28. júlí
  • Meghan Markle, leikkona, 4. ágúst
  • Joe Rogan, hlaðvarpsstjórnandi, 11. ágúst
  • Halldóra Geirharðsdóttir, leikkona, 12. ágúst
  • Madonna, söngkona, 16. ágúst





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.