Lífið

Ágústspá Siggu Kling: Feikaðu hugrekki og sjálfstraustið grípur þig

Sigga Kling skrifar
nautid

Elsku Nautið mitt, að vera góður við aðra eru einkunnar orðin þín í þessum mánuði. Að framkvæma og gera eitthvað fyrir aðra án þess að taka fyrir það laun mun koma þér á þann stað sem þig hefur lengi dreymt um.

  • Nautið er frá 20. apríl til 20. maí.

Það eru sviptivindar í orkunni þinni og kraftinum þínum og þú lendir í ótrúlega skemmtilegri atburðarás sem er að birtist þér af því að þú bíður fram aðstoð þína. Hjarta þitt er að hreinsast, munu þolinmæði, friður og ást umlykja þig.

Þú veist það að þú þarft að sýna hugrekki og mikið sjálfsöryggi, sama þótt þú finnir ekki þá tilfinningu hjá þér núna, þá þarftu bara að feika það og sjálfstraustið grípur þig. 

Að skrifa niður á blað það sem þú villt að komi til þín á næstu vikum eru eins og töfrabrögð. Ef þú ert á lausu og óskar eftir ástinni þá skaltu ímyndað taka hjarta þitt í hendina og fleygir því frá þér og biður svo um að RÉTTUR aðili grípi það. 

Klippa: Ágústspá Siggu Kling - Nautið

Þú ert undir regnboganum, núna og eins og hann er í öllum litum þá skaltu gefa þér það að klæðast eitthvað af þeim litum til þess að geisla eins og regnboginn. Þó að þér finnist að öryggi þínu sé ógnað á einhvern hátt þá er það ekki rétt hugsun svo slepptu henni. 

Þessar hugsanir gefa þér bara veikindi og slappleika. Þú ert búin að skapa þennan karakter sem þú ert, haltu áfram að þróa þig í þá átt sem þú villt fara þá birtan mun lýsa upp allan þann veg sem þú gengur.

Knús og kossar

Sigga Kling

  • Elizabeth Alexandra Mary, fyrrum drottning Bretlands, 21. apríl
  • Halldór Kiljan Laxness, rithöfundur og ljóðskáld, 23. apríl
  • Gigi Hadid, fyrirsæta, 23. apríl
  • William Shakespeare, leikari, 26. apríl
  • Melissa Viviane Jefferson (Lizzo), söngkona, 27. apríl
  • Garðar Thór Cortes, óperusöngvari, 2. maí
  • Eliza Jean Reid, fyrrum forsetafrú Íslands, 5. maí
  • Katrín Tanja Davíðsdóttir, crossfit stjarna, 10. maí
  • Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum forseti Íslands, 14. maí





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.