Lífið

Ágústspá Siggu Kling: Notaðu svarta húmorinn og brostu meira

Sigga Kling skrifar
hrutur

Elsku Hrúturinn minn, þér finnst að þú þurfir að vera alls staðar og klára allt helst í gær. Þessi tilfinning eða orka sem er yfir þér getur nákvæmlega gert þig svo stressaðan.

  • Hrúturinn er frá 21. mars til 19. apríl.

Orðið stress vil ég samt að þú breytir yfir í spennandi. Því að þegar þetta er að tikka inn í hjarta þitt þá áttu erfitt með að einbeita þér að nokkru. Gerðu bara eitt í einu, þú átt eftir að leysa allt sem þú ert að hugsa um á þeim tíma sem er bestur fyrir þig. 

Það er svo sterkt inn í hrútsorkunni að allt þurfi að vera núna og strax annars er pirringurinn að drepa þig.

Það er gott fyrir þig að hafa dass af kæruleysi, nota þinn svarta og kalda húmor og hlægja og brosa meira. Því að nákvæmlega sú tíðni gerir það að allt blessast á réttum tíma.

Klippa: Ágústspá Siggu Kling - Hrútur

Þú þarft að skoða það vel að þegar þér finnst ekkert vera að ganga eða ekkert vera að ganga í einhverju máli og þú ýtir og ýtir, þá átt þú að tökunum, því það er ástæða fyrir þessu. 

Og allt hefur tilgang alveg sama hvernig þú lítur á það. Beindu ekki spjótunum að þér heldur hentu þeim bara. Ekki vitund spá í það sem gerðist í gær eða í fortíðinni því þá kallar þú bara yfir þig leiðindi og móral sem þú átt alveg að sleppa. 

Ég elska æðruleysisbænina svo notaðu hana. Það kemur þér kannski á óvart en ég ætla að segja þér að þú ert undir lukkustjörnu í sambandi við peninga, þú skalt halda huganum þínum svolítið fast á því að ýta á eða skoða hvað er best að gera og þegar þú ert búin að hreyfa við þessum málum þá sleppirðu síðan alveg að hugsa um þau og BÚMM, lífið fer að gerast í þessum veraldlegu tengslum. 

Æðruleysisbænin

Guð gefi mér æðruleysi

til þess að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt

kjark til að breyta því sem ég get breytt

Og vit til að greina þar á milli.

-Reinhold Niebuhr


Ástríðan rennur um allt æðakerfi þitt og ótrúlegasta fólk lítur á þig með aðdáun.

Knús og kossar

Sigga Kling

  • Marlon Brando, leikari, 3. apríl
  • Eddie Murphy, leikari, 3. apríl
  • Robert Downey Jr., leikari, 4. apríl
  • Heath Ledger, leikari, 4. apríl
  • Jackie Chan, leikari 7. apríl
  • Thomas Jefferson, fyrrum forseti Bandaríkjanna, 13. apríl
  • Emma Watson, leikkona, 15. apríl
  • Charlie Chaplin, grínisti, 16. apríl





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.