Bylgjulestin verður á Akureyri 17. júní Bylgjulestin 16. júní 2023 12:52 Bylgjulestin mætir til Akureyrar á morgun laugardag, á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Boðið verður upp á fjöruga og fjölbreytta dagskrá. Bylgjulestin heimsækir höfuðstað Norðurlands á sjálfan þjóðhátíðardaginn, laugardaginn 17. júní.
Lestarstjórarnir Vala Eiríks, Svali og Erna Hrönn ætla að koma sér vel fyrir á MA lóðinni við Lystigarðinn á Akureyri þar sem þau verða í beinni útsendingu á Bylgjunni á laugardag frá kl. 12 til 16. Eins og venjulega munu þau ræða við hlustendur, heimamenn og aðra gesti en búast má við miklum fjölda gesta í miðbænum á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Mikið fjör verður í kringum Bylgjulestarbílinn þar sem samstarfsaðilar Bylgjulestarinnar munu setja upp leiki og gefa alls kyns varning. „Það er alveg óhætt að reikna með mikilli gleði og góðri skemmtun,“ segir Vala Eiríks, einn lestarstjóra morgundagsins. „Við munum bjóða upp á frábæra gesti, lifandi tónlist, leiki, góðan mat og dýrmæta samveru. Bylgjulestin er voðalega heimilisleg og við fögnum öllum þeim sem vilja koma og heilsa upp á okkur.“ Vala Eiríks er einn lestarstjóra Bylgjulestarinnar á laugardaginn þegar þau heimsækja Akureyri. „Við munum bjóða upp á frábæra gesti, lifandi tónlist, leiki, góðan mat og dýrmæta samveru. Bylgjulestin er voðalega heimilisleg og við fögnum öllum þeim sem vilja koma og heilsa upp á okkur,“ segir hún. Geggjaðir matarvagnar frá Götubitanum verða með okkur á Akureyri en það eru Silli kokkur, 2Guys og Dons Donuts. Kíktu við og taktu þátt í fjörinu, svalaðu þorstanum með sykurlausu appelsíni, gæddu þér á góðgæti frá Nóa Siríus og skemmtu þér með okkur í boði Orku náttúrunnar, Vodafone, Heklu, Samgöngustofu og Nettó. Völu finnst Akureyri vera frábær yfir sumartímann. „Strax og ég keyri inn fyrir Gellunesti finn ég hvernig slaknar á sál og líkama, allt er hægara á Akureyri sem er frábært. Yfir bænum er ró en samt er nóg um að vera. Það er stutt í fallega náttúruna og sveitastemningu, frábærar sundlaugar og líklega skemmtilegustu rennibrautir landsins sem er í Akureyrarlaug. Svo er veðrið alltaf best fyrir norðan.“ Bylgjulestin lagði af stað fyrsta laugardag í júní en fyrsti viðkomustaðurinn var Grindavík þar sem fjölskylduhátíðin Sjóarinn síkáti fór fram. Síðasta laugardag stoppaði hún í Hveragerði og á næstu vikum mun hún ferðast vítt og breitt um landið, m.a. á Húsavík og Akranesi. Bylgjulestin var á Akureyri síðasta sumar og að sjálfsögðu í frábæru veðri. Næsta laugardag, 24. júní, mun Bylgjulestin heimsækja Stykkishólm og er óhætt að búast við góðri stemningu í bænum þann daginn. Bylgjulestin, björt og brosandi um allt land í sumar.
Bylgjulestin Bylgjan Mest lesið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Lífið Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Lífið Fagnaði 35 árum í sólinni Lífið Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Lífið Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Lífið Fleiri fréttir MZ Skin – Lúxus húðvörur sem byggja á vísindum og fagurfræði Þetta þurfum við í útihlaupin í vetur Osteostrong á erindi við alla aldurshópa Sprenghlægilegur gamanleikur frumsýndur í október í Þjóðleikhúsinu Fólk öðlast frelsi og hugarró og sumir jafnvel nýtt líf Heitustu haust- og vetrartrendin 2024 Inga Lilý hlaut aðalvinninginn í ár Hefur tekið Nutrilenk í 20 ár og gæti ekki án þess verið Getur hundur hjálpað mér að reima? - Ráðstefna um dýr í starfi með fólki Fallegur golfvöllur á sögulegum slóðum Aldrei haft jafn þykkt hár Eva Ruza skipuleggur húðrútínu sína með L´Oréal Paris Skemmtilegur golfvöllur umkringdur stórkostlegri náttúru Einstök saga sem á erindi við okkur öll Það kom sér vel fyrir Erlu að eiga til pakka af Active Liver! Nýr EM hópur í glæsilegum keppnisbúningi frá Castelli Cycling Líklega best geymda leyndarmálið á meðal kylfinga Ótrúlega öflug meðferð Vinkonukvöldin hjá Elira Beauty farin af stað Krefjandi golfvöllur í óvenjulegri náttúrufegurð Flogið beint til Brno í fyrsta skipti frá Íslandi 15 íslenskar þáttaraðir á Stöð 2 í haust Allt fyrir hlaupið á einum stað Hjólakeppnin Grefillinn nýtur sífellt meiri vinsælda Golfvöllur staðsettur í mikilli náttúruparadís Sólríkar borgarferðir og ljúfar aðventuferðir með Úrval Útsýn Tekur Nutrilenk samhliða Femarelle og mælir hiklaust með Svefninn skiptir máli! Opnuðu kaffihús fyrir hunda og ketti – Einn Puppaccino takk! Skemmtilegur golfvöllur í einstaklega fallegu umhverfi Sjá meira