Lífið

Garpur bugaður á Kerlingu

Aníta Guðlaug Axelsdóttir skrifar
Fjalla-Garpur frekar bugaður.
Fjalla-Garpur frekar bugaður.

Garpur og félagar hans, Jónas og Andri Már fóru í leiðangur í Svarfaðadal í klifur upp Kerlingareld. Kerlingareldur er veggur í miðju fjalli sem heitir Kerling sem gnæfir yfir dalnum. Veggurinn er 200 metra hár og hafa ekki margir klifrarar farið þar upp. 

Jökull Bergmann leiddi fyrsta leiðangurinn 1997 og hafa aðeins 12 hópar klifrara náð toppnum síðan. Það var því krefjandi verkefni sem beið þeirra félaga.

Þetta áhugamál er ekki fyrir lofthrædda.

Það gekk á ýmsu þetta sumarkvöld, Garpur gleymdi klifurskónum og bugaðist á verkefninu, en strákarnir leyfðu honum þó ekki að gefast upp.

Í guðanna bænum ekki sleppa. Andri Már og Jónas hughreysta Garp.
Þetta lítur út fyrir að vera auðvelt verkefni.

Kerlingareldur er fyrir miðju á myndinni, það þyrfti að borga mér góða upphæð. 

Þáttinn í heild sinni má sjá í spilaranum hér að neðan.

Klippa: Okkar eigið Ísland - Kerlingareldur

Hér fyrir neðan má sjá fleiri Okkar eigið Ísland þætti.

Ævintýramaðurinn Garpur I. Elísabetarson og klifrarinn Andri Már Ómarsson fara í leiðangur upp Hraundranga í Öxnadal.

Klippa: Okkar eigið Ísland - Hraundrangar

Garpur sýnir Andra íshellana í Kötlujökli.

Klippa: Okkar eigið Ísland - Kötlujökull

Tengdar fréttir

Okkar eigið Ís­land: Á brjóstunum í Beru­firði

Ævintýramaðurinn Garpur I Elísabetarson heldur áfram ferðalögum sínum í þáttunum Okkar eigið Ísland. Í þessum fimmta þætti fer hann á Vestfirði og skellir sér á Vaðalfjöll sem liggja á Berufirði og Þorskafirði.

Okkar eigið Ís­land: Eitt fal­legasta fjall landsins falið á há­lendinu

Í þriðja þætti af Okkar Eigið Ísland fara þeir Garpur og Andri í ferðalag yfir hálendi landsins. Þeir keyra hin fallega fjallaveg sem kallast F210 sem leiðir þá yfir fallegt hálendið og nátturuperlur og enda hjá Mælifelli, sem er eitt allra fallegasta fjall landsins. 

Undra­ver­öld Kötlu­jökuls, ís­hellar og ævin­týri

Í öðrum þætti af Okkar eigið Ísland fer Garpur með Andra og sýnir honum íshellana í Kötlujökli. Hellirinn er mjög aðgengilegur og nær höfuðborginni en flest svona ævintýri. Andri hefur aldrei séð íshelli áður og má segja að upplifun hans svíki engan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.