Lífið

Júní­spá Siggu Kling: Ekki dauð stund í lífi tví­burans

Sigga Kling skrifar

Elsku Tvíburinn minn, það er vart hægt að segja að það sé dauður punktur í lífi þínu, þó allt sé ekki alltaf gaman, því þá væri það ekki skemmtilegt. Þú ert staddur í miðri hasarmynd og sveiflurnar í tilfinningum eru eins og hasardljósin. Þú leitar eftir spennu en þegar hún er til staðar þá leitarðu eftir friði og jafnvægi. Þess vegna finnst þér að þú sért stöðugt að leita að sjálfum þér eða einhverju sem sem getur breytt lífinu þínu.

  • Tvíburi er frá 21. maí til 21. júní.

Á meðan að hugurinn er á þessum hraða þá nýtirðu þér það ekki að þú hefur allt sem þarf til þess að vera hamingjusamur, en ef þú eltist við hamingjuna þá finnurðu hana ekki. Þetta er svipað og þegar þú ætlar í megrun ef þú ert óánægður með þig eins og þú ert, þá nærðu ekki því takmarki. Þetta er eins og sagan endalausa, því að það endurtekur sig alltaf aftur og aftur það erfiða ef þú umfaðmar það ekki og þakkar fyrir þroskann sem það gefur þér.

Þegar við skoðum það tímabil sem er að opnast fyrir þér er bara sólin vís og sólarbarnið sem þú ert mun taka á móti því sem það á skilið. Þú ert aðlaðandi og frískandi persónuleiki og það er yndislegt að vera nálægt þér. Þú getur bæði verið svo viðkvæmur, en samt með afbrigðum hreinskilinn. Þú hefur aðdráttarafl og sogar til þín óvænta atburði og þegar það fer að gerast í kringum þig, mótast tækifæri eins og loforðalisti ríkisstjórnarinnar. Það er ekkert að hindra þig, svo gríptu ævintýrin, því þau þurfa að vera í ævisögunni þinni.

Þó að þú hafir kvíða gagnvart fjármálum eða veraldlegum gæðum þá bjargast það allt, kannski á síðustu mínútu. Þó að þú hafir það ekki í sjónmáli þá skaltu samt setja það inn í tilfinninguna þína og huga þinn að þetta reddast er mottóið hjá þér.

  • Sir Ian Mckellen, leikari, 25. maí
  • Anita Briem, leikkona, 29. maí
  • Eyþór Ingi Gunnlaugsson, söngvari, 29. maí
  • Marilyn Monroe, leikkona, 1. júní
  • Donald Trump, fyrrum forseti Bandaríkjanna, 14. júní
  • Xi Jinping, stjórnmálamaður, 15. júní
  • Boris Johnson, stjórnmálamaður, 19. júní
  • Dagur B Eggertsson, borgarstjóri, 19. júní





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.