Brotlentu á Eiríksjökli Aníta Guðlaug Axelsdóttir skrifar 14. maí 2023 07:00 Flugvélabrakið á Eiríksjökli. RAX Tveir Bretar ætluðu að fljúga yfir Eiríksjökul á leið sinni til Grímseyjar árið 1984 en flugu á jökulinn og brotlentu á honum í kjölfarið. Hannes Hafstein, sem stýrði Slysavarnarfélaginu á þessum tíma, bað RAX að reyna að ná myndum af slysstað. RAX flaug af stað en þegar hann kom að flakinu leist honum ekki á blikuna. „Flakið liggur þarna og bara stélið sem er heillegt. Hitt er allt í rusli.“ Hann náði myndum þar sem leiðangur björgunarmanna fikraði sig upp að flakinu en björgunarþyrla þurfti að lenda nokkuð neðar á jöklinum en flakið var staðsett. RAX velti því fyrir sér hvernig svona nokkuð gæti skeð því að Bretarnir voru nánast komnir yfir jökulinn þegar þeir flugu á hann. „Sennilega hefur það verið svokallað „white-out“. Á jökli er það mjög hættulegt að þú missir hæðarskyn.“ Miðað við útlitið á slysstað þótti ólíklegt að Bretarnir hefðu lifað af og það kom björgunarmönnum mjög á óvart að heyra raddir þegar þeir nálguðust flakið. Myndirnar af björgunarleiðangrinum uppi á Eiríksjökli má sjá í nýjasta þætti RAX Augnablik í spilaranum hér að neðan. Klippa: RAX augnablik - Flugslys á Eiríksjökli Hér fyrir neðan má sjá fleiri þætti úr smiðju RAX. Þegar leiðtogafundur Ronalds Reagan og Michails Gorbachev var haldinn í Höfða í Reykjavík árið 1986 fékk RAX það verkefni að mynda fundinn. Viðburðurinn var einhver sá stærsti á ferli RAX svo hann tók verkefninu fagnandi. Í þvögu alþjóðlegra ljósmyndara fyrir utan Höfða kynntist RAX hins vegar samkeppni af öðrum toga en hann hafði áður kynnst, og óskammfeilni alþjóðlegra kollega sinna. Ljósmyndarinn Ron Edmonds tók RAX undir sinn verndarvæng og með ráðum frá honum náði RAX ljósmynd sem átti eftir að birtast víða um heim. Klippa: RAX Augnablik - Leiðtogafundurinn í Höfða Árið 2008 lagði RAX upp í erfiða flugferð norður í land til að mynda ísbjörn sem hafði gengið á land við Hraun á Skaga. Nokkur viðbúnaður var á svæðinu og til stóð að fanga ísbjörninn. Veðrið setti strik í reikninginn því deyfipílurnar sem til stóð að svæfa björninn með flugu út í buskann þegar þeim var skotið. Klippa: RAX Augnablik - Ísbjörn við Hraun á Skaga Í þáttunum RAX Augnablik segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+. Hægt er að sjá alla þættina hér á Vísi. RAX Ljósmyndun Leiðtogafundurinn í Höfða Tengdar fréttir „Ef Katla gýs þá er þetta það fyrsta sem hverfur“ „Ég er með jöklaáhuga, alveg svakalegan. Ég flýg reglulega yfir þá og mynda allt sem ég get og ætla að gera það eins lengi og ég get,“ segir ljósmyndarinn og flugmaðurinn Ragnar Axelsson. 20. nóvember 2022 07:00 Flugferð með RAX: Upplifði algjört skilningsleysi þegar eldgosið hófst „Maður veit aldrei hvaða ljósmynd lifir, en það eru nokkrar sem lifa og eignast sjálfstætt líf,“ segir Ragnar Axelsson ljósmyndari, sem hefur flogið af stað í öllum veðrum og vindum að mynda helstu viðburði Íslandssögunnar síðastliðin fjörutíu ár. 23. ágúst 2021 15:30 Fólk stofnar fyrirtæki með aðstoð Íslendinga Alls staðar á hnettinum erum við mannfólkið að kljást við það sama, að búa okkur til lífvænleg skilyrði. Að koma þaki yfir höfuðið, hafa öruggt aðgengi að mat, og hafa tækifæri til að afla sér tekna. 30. apríl 2023 07:02 Bílarnir sem Kaninn skildi eftir Að ramba á stað sem eitt sinn iðaði af lífi en er nú í eyði er sérstök upplifun. Ikatek flugvöllur á Grænlandi er þannig staður. Hann var byggður af Bandaríkjaher í seinna stríði og notaður sem varaflugvöllur þar sem flugvélar á þessum slóðum gátu fengið olíu. Bílar, olíutunnur og leifar af flugskýlum og skálum standa á svæðinu innan um tignarleg fjöllin í kring og hafa ekki verið hreyfð eða notuð frá því að stríðinu lauk. 7. maí 2023 07:01 Mest lesið Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Lífið Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Lífið Vaktin: Væb-strákarnir stíga á svið í Basel Lífið Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Lífið Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Lífið Ógleymanleg upplifun á klósetti í norskum kastala Tíska og hönnun Sterkar vísbendingar um að Céline Dion mæti í kvöld Lífið Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Lífið Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Lífið Baráttan um jólagestina hafin Lífið Fleiri fréttir Klúróvision í kvöld: „Þetta fer svo fyrir brjóstið á okkur að við förum úr fötunum“ Vaktin: Væb-strákarnir stíga á svið í Basel Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Krókódíllinn úr Happy Gilmore allur Bjarni Ara í íslensku dómnefndinni Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Sterkar vísbendingar um að Céline Dion mæti í kvöld Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Sjá meira
„Flakið liggur þarna og bara stélið sem er heillegt. Hitt er allt í rusli.“ Hann náði myndum þar sem leiðangur björgunarmanna fikraði sig upp að flakinu en björgunarþyrla þurfti að lenda nokkuð neðar á jöklinum en flakið var staðsett. RAX velti því fyrir sér hvernig svona nokkuð gæti skeð því að Bretarnir voru nánast komnir yfir jökulinn þegar þeir flugu á hann. „Sennilega hefur það verið svokallað „white-out“. Á jökli er það mjög hættulegt að þú missir hæðarskyn.“ Miðað við útlitið á slysstað þótti ólíklegt að Bretarnir hefðu lifað af og það kom björgunarmönnum mjög á óvart að heyra raddir þegar þeir nálguðust flakið. Myndirnar af björgunarleiðangrinum uppi á Eiríksjökli má sjá í nýjasta þætti RAX Augnablik í spilaranum hér að neðan. Klippa: RAX augnablik - Flugslys á Eiríksjökli Hér fyrir neðan má sjá fleiri þætti úr smiðju RAX. Þegar leiðtogafundur Ronalds Reagan og Michails Gorbachev var haldinn í Höfða í Reykjavík árið 1986 fékk RAX það verkefni að mynda fundinn. Viðburðurinn var einhver sá stærsti á ferli RAX svo hann tók verkefninu fagnandi. Í þvögu alþjóðlegra ljósmyndara fyrir utan Höfða kynntist RAX hins vegar samkeppni af öðrum toga en hann hafði áður kynnst, og óskammfeilni alþjóðlegra kollega sinna. Ljósmyndarinn Ron Edmonds tók RAX undir sinn verndarvæng og með ráðum frá honum náði RAX ljósmynd sem átti eftir að birtast víða um heim. Klippa: RAX Augnablik - Leiðtogafundurinn í Höfða Árið 2008 lagði RAX upp í erfiða flugferð norður í land til að mynda ísbjörn sem hafði gengið á land við Hraun á Skaga. Nokkur viðbúnaður var á svæðinu og til stóð að fanga ísbjörninn. Veðrið setti strik í reikninginn því deyfipílurnar sem til stóð að svæfa björninn með flugu út í buskann þegar þeim var skotið. Klippa: RAX Augnablik - Ísbjörn við Hraun á Skaga Í þáttunum RAX Augnablik segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+. Hægt er að sjá alla þættina hér á Vísi.
Í þáttunum RAX Augnablik segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+. Hægt er að sjá alla þættina hér á Vísi.
RAX Ljósmyndun Leiðtogafundurinn í Höfða Tengdar fréttir „Ef Katla gýs þá er þetta það fyrsta sem hverfur“ „Ég er með jöklaáhuga, alveg svakalegan. Ég flýg reglulega yfir þá og mynda allt sem ég get og ætla að gera það eins lengi og ég get,“ segir ljósmyndarinn og flugmaðurinn Ragnar Axelsson. 20. nóvember 2022 07:00 Flugferð með RAX: Upplifði algjört skilningsleysi þegar eldgosið hófst „Maður veit aldrei hvaða ljósmynd lifir, en það eru nokkrar sem lifa og eignast sjálfstætt líf,“ segir Ragnar Axelsson ljósmyndari, sem hefur flogið af stað í öllum veðrum og vindum að mynda helstu viðburði Íslandssögunnar síðastliðin fjörutíu ár. 23. ágúst 2021 15:30 Fólk stofnar fyrirtæki með aðstoð Íslendinga Alls staðar á hnettinum erum við mannfólkið að kljást við það sama, að búa okkur til lífvænleg skilyrði. Að koma þaki yfir höfuðið, hafa öruggt aðgengi að mat, og hafa tækifæri til að afla sér tekna. 30. apríl 2023 07:02 Bílarnir sem Kaninn skildi eftir Að ramba á stað sem eitt sinn iðaði af lífi en er nú í eyði er sérstök upplifun. Ikatek flugvöllur á Grænlandi er þannig staður. Hann var byggður af Bandaríkjaher í seinna stríði og notaður sem varaflugvöllur þar sem flugvélar á þessum slóðum gátu fengið olíu. Bílar, olíutunnur og leifar af flugskýlum og skálum standa á svæðinu innan um tignarleg fjöllin í kring og hafa ekki verið hreyfð eða notuð frá því að stríðinu lauk. 7. maí 2023 07:01 Mest lesið Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Lífið Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Lífið Vaktin: Væb-strákarnir stíga á svið í Basel Lífið Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Lífið Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Lífið Ógleymanleg upplifun á klósetti í norskum kastala Tíska og hönnun Sterkar vísbendingar um að Céline Dion mæti í kvöld Lífið Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Lífið Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Lífið Baráttan um jólagestina hafin Lífið Fleiri fréttir Klúróvision í kvöld: „Þetta fer svo fyrir brjóstið á okkur að við förum úr fötunum“ Vaktin: Væb-strákarnir stíga á svið í Basel Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Krókódíllinn úr Happy Gilmore allur Bjarni Ara í íslensku dómnefndinni Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Sterkar vísbendingar um að Céline Dion mæti í kvöld Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Sjá meira
„Ef Katla gýs þá er þetta það fyrsta sem hverfur“ „Ég er með jöklaáhuga, alveg svakalegan. Ég flýg reglulega yfir þá og mynda allt sem ég get og ætla að gera það eins lengi og ég get,“ segir ljósmyndarinn og flugmaðurinn Ragnar Axelsson. 20. nóvember 2022 07:00
Flugferð með RAX: Upplifði algjört skilningsleysi þegar eldgosið hófst „Maður veit aldrei hvaða ljósmynd lifir, en það eru nokkrar sem lifa og eignast sjálfstætt líf,“ segir Ragnar Axelsson ljósmyndari, sem hefur flogið af stað í öllum veðrum og vindum að mynda helstu viðburði Íslandssögunnar síðastliðin fjörutíu ár. 23. ágúst 2021 15:30
Fólk stofnar fyrirtæki með aðstoð Íslendinga Alls staðar á hnettinum erum við mannfólkið að kljást við það sama, að búa okkur til lífvænleg skilyrði. Að koma þaki yfir höfuðið, hafa öruggt aðgengi að mat, og hafa tækifæri til að afla sér tekna. 30. apríl 2023 07:02
Bílarnir sem Kaninn skildi eftir Að ramba á stað sem eitt sinn iðaði af lífi en er nú í eyði er sérstök upplifun. Ikatek flugvöllur á Grænlandi er þannig staður. Hann var byggður af Bandaríkjaher í seinna stríði og notaður sem varaflugvöllur þar sem flugvélar á þessum slóðum gátu fengið olíu. Bílar, olíutunnur og leifar af flugskýlum og skálum standa á svæðinu innan um tignarleg fjöllin í kring og hafa ekki verið hreyfð eða notuð frá því að stríðinu lauk. 7. maí 2023 07:01