Lífið

Diljá kvíðir því ekki að stíga á svið

Íris Hauksdóttir skrifar
Diljá Pétursdóttir keppir fyrir Íslands hönd í seinni undankeppni Eurovision í kvöld.
Diljá Pétursdóttir keppir fyrir Íslands hönd í seinni undankeppni Eurovision í kvöld. Mummi Lú

Nú styttist óðum í að Diljá Pétursdóttir stígi á stóra sviðið í Liverpool fyrir hönd okkar Íslendinga þar sem Eurovision keppnin er haldin í ár. Sjálf segist hún ekkert kvíðin fyrir kvöldinu enda sé stress neikvæð tilfinning. 

Það er óhætt að segja Diljá að hafi sungið sig inn í hug og hjörtu landsmanna þegar hún stóð uppi sem sigurvegari Söngvakeppni sjónvarpsins fyrr í vor með laginu sínu Power

Diljá mun koma fram í seinni undankeppni Eurovision í kvöld en veðbankar erlendis telja miklar líkur á að Ísland komist áfram í úrslit. Samkvæmt nákvæmum spám dagsins í dag er Íslandi spáð 21. sæti í heildarkeppninni. Sjálf segir Diljá stemninguna mjög svo góða og hún sé bjartsýn á framhaldið. 

Ekkert óraunverulegt að stíga á sviðið

„Það er bilað skrítið að vera sett út sem fulltrúi Íslands og upplifa svona mikið lof frá erlendum Eurovision aðdáendum og sérfræðingum," segir Diljá í samtali við Brennsluna sem tekið var á dögunum. „Það eru alls sextán lög sem taka þátt (í kvöld) og tíu komast áfram í lokakeppnina sem verður haldin þann 13. maí. Undirbúningurinn er því vægast sagt í fullum gangi en þetta er bara pjúra stemning."

Þetta hlýtur að vera þvílíkur æskudraumur að rætast, hvernig var tilfinningin að stíga á sviðið í fyrsta sinn? „Ég myndi ekki orða það þannig að það hafi verið overwhelming eða neitt þannig þetta var bara cool mér leið bara vel."

Viðtalið í heild má hlusta á hér fyrir neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.