Lagið var spilað á Íslenska listanum á FM í dag sem hluti af fasta liðnum Íslenskt og áhugavert. Í fréttatilkynningu kemur meðal annars fram að hann hafi samið lagið ásamt listrænu teymi sínu eftir stutta dvöl í Brasilíu.
Óður til djammsins
„Harðyrtur texti BLOSSA gæti minnt á textann í gamla smellinum Lady Marmalade sem samið var af Bob Crewe og Kenny Nola en lagið er frægt fyrir endurtekið viðlagið Voulez-vous coucher avec moi? sem á frönsku þýðir einfaldlega Viltu sofa hjá mér í kvöld?
Viðlag BLOSSA er grípandi og kjarnar örugglega hugsun sem margir Íslendingar fá við að fara út á skemmtanalífið,“ segir í tilkynningu frá teymi BLOSSA.
Hér má heyra lagið:
„Ég var á klúbbi í Brasilíu og var umkringdur svo mikilli orku, þið vitið hvernig þetta er. Dúndrandi tónlistin streymdi um æðar mínar, takturinn veitti mér innblástur og textinn bara helltist út úr mér.
Ég vildi fanga þessu spennu og ástríðu og víbrur fólksins sem dansaði í kringum mig en þar sem ég er frá Íslandi þá saknaði ég djammsins heima. Það mætti því segja að lagið sé bæði óður til Brasilíu og Íslands, eða djammsins það er að segja,“ segir BLOSSI jafnframt í tilkynningunni.
Heimildir Lífsins á Vísi herma að maðurinn á bak við rödd BLOSSA sé sviðslistanemandinn og söngvarinn Álfgrímur Aðalsteinsson en hann og Kolbrún Ólafsdóttir, jafnan þekkt sem Kusk, eru einmitt skráð sem lagahöfundar Heim með þér á streymisveitunni Spotify.
Í næstu viku mun BLOSSI koma fram í óhefðbundnum og listrænum spjallþætti sem ber heitið Vaknaðu Ísland. Hér má hlusta á Blossa á Spotify.
Breskt ofurdúó á toppnum
Söngkonan Ellie Goulding og plötusnúðurinn Calvin Harris sitja í fyrsta sæti Íslenska listans á FM í þessari viku með lagið Miracle. Daniil og Friðrik Dór fylgja fast á eftir í öðru sætinu með lagið Aleinn af plötunni 600 sem Daniil gaf út nú í lok mars.
Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga á milli klukkan 14:00 og 16:00 á FM957.
Lög Íslenska listans:
Íslenski listinn á Spotify: