Sovéskar hersveitir voru á þessum tíma staðsettar í Eystrasaltsríkjunum til þess að berja niður þessa sjálfstæðistilburði og um það leyti sem íslenska föruneytið kom til Eystrasaltsins höfðu átökin harðnað verulega.
„Það var búið að keyra yfir fólk á skriðdrekum.“
RAX myndaði ástandið á götum höfuðborganna en fólk flykktist út á göturnar í því óvissuástandi sem ríkti og kveikti varðelda og reisti vegatálma til að hefta för sovésku hermannanna.
„Ég vissi eiginlega ekki hvað byssa er, þó ég viti hvað það er, en óttaðist þær ekki.“
RAX áttaði sig ekki á hættunni sem föruneytið var í og var hársbreidd frá því að flækjast inn í atburði sem hefur verið lýst sem þeim blóðugustu í sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsríkjanna. Um sama leyti var stríð að brjótast út í Persaflóa og augu heimsins beindust þangað, og að auki gaus Hekla rétt fyrir brottför föruneytisins. Vegna þess hafa flestar af þessum ljósmyndum hvergi birst áður og birtast nú í fyrsta skipti í nýjasta þætti RAX Augnablik í spilaranum hér að neðan.
Hér fyrir neðan má sjá fleiri þætti úr smiðju RAX.
RAX hefur áður verið á slóðum þar sem hætta vofir yfir. Um aldamótin fór hann til Suður-Afríku og Mósambík til þess að mynda ástandið í miklum eyðni faraldri sem geisaði í syðri hluta álfunnar. Tilgangurinn var að hefja söfnun til þess að fræða fólk á þessu svæði um sjúkdóminn en óvíst var hvort að fólkið sem hann myndaði yrði enn á lífi þegar myndirnar birtust.
RAX fór líka til Síberíu til að mynda líf hreindýrahirðingja á síberísku túndrunni. Nútíminn með allri sinni tækni og þægindum er ekki einn um að ógna þessum lifnaðarháttum því með hlýnandi veðurfari bráðnar sífrerinn sífellt meir og óvíst er hvaða óværur hafa leynst þar frosnar í hundruð eða jafnvel þúsund ára.
Í þáttunum RAX Augnablik segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+.
Hægt er að sjá alla þættina hér á Vísi.