Dó líknardauða sextán árum eftir að hafa myrt fimm börn sín Atli Ísleifsson skrifar 3. mars 2023 11:52 Hin belgíska Genevieve Lhermitte var dæmd í lífstíðarfangelsi árið 2008. EPA Belgísk kona, sem myrti fimm börn sín árið 2007, hefur dáið líknardauða, sextán árum eftir að hún banaði fimm börnum sínum.
Genevieve Lhermitte myrti son sinn og fjórar dætur í bænum Nivelles suður af belgísku höfuðborginni Brussel þann 28. febrúar 2007. Faðir barnanna var staddur í heimalandi sínu, Marokkó, þegar konan myrti börnin sem þá voru á aldrinum þriggja til fjórtán ára. BBC segir frá því að Lhermitte hafi reynt að svipta sig lífi eftir að hafa banað börnunum, en hringdi svo í neyðarlínuna og var hún handtekin á staðnum. Hin 56 ára Lhermitte var dæmd í lífstíðarfangelsi árið 2008 og var flutt á réttargeðdeild fyrir fjórum árum. Frá minningarathöfn um börnin.EPA Lög í Belgíu gera ráð fyrir að fólk megi deyja líknardauða, meti læknar viðkomandi þannig að sá sé haldin „óbærilegum“ sálfræðilegum sársauka sem ekki sé hægt að jafna sig á. Manneskjan verður að vera meðvituð um ákvörðun sína að óska eftir líknardrápi og þurfa óskirnar að vera vel rökstuddar og ítrekaðar. Morðin á börnunum skóku Belgíu þegar upp komst um málið snemma árs 2007. Genevieve Lhermitte lést 28. febrúar síðastliðinn þegar nákvæmlega sextán ár voru liðin frá morðunum. Börnin voru myrt í húsi fjölskyldunnar í bænum Nivelles, suður af Brussel. EPA Á meðan á réttarhöldunum stóð sögðu verjendur Lhermitte að hún væri andlega veik og ætti því ekki að verða dæmd til fangelsisvistar. Kviðdómur fann hana hins vegar seka af ákæru og var hún í kjölfarið dæmd í lífstíðarfangelsi. Um þrjú þúsund manns fengu dánaraðstoð í Belgíu á síðasta ári, tíu prósent fleiri en árið 2021. Í flestum tilfellum er óskað eftir dánaraðstoð í kjölfar krabbameinsgreiningar.
Belgía Dánaraðstoð Erlend sakamál Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira