Lífið

Fékk kökuna í and­litið í Idol köku­skreytingar­ein­vígi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Saga og Kjalar eru tvö eftir í Idol keppninni.
Saga og Kjalar eru tvö eftir í Idol keppninni. Vísir

Idol úrslitin eru í kvöld. Kjalar og Saga Matthildur eru á leið í einvígi og að því tilefni ákvað Gústi B að hita þau upp með öðruvísi keppni og útkoman var skrautleg. 

Keppnin gekk út á að skreyta kökur og sú best skreyttasta var svo valin af dómnefnd. Sigurvegarinn fengi svo að kasta köku í andlit andstæðingsins. Myndband af keppninni má sjá hér fyrir neðan. 

„Ég vandaði mig mjög mikið við að gera kökuna því mig hefur alltaf langað að henda köku í andlitið á einhverjum. Þannig að ég naut þess,“ sagði sigurvegarinn stoltur að lokinni keppni. 

Klippa: Saga Matthildur og Kjalar kepptu í kökuskreytingum hjá Gústa B

Gústi B hefur reglulega látið keppendur í Idol keppa í ýmsum þrautum. Þrjár vel valdar má sjá hér fyrir neðan.

Myndlistarkeppnin

Leiklistarkeppnin

Þorramats-smakkið


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.