Albumm

Albumm stækkar teymið sitt og er með stór plön fyrir 2023

Steinar Fjeldsted skrifar
Álfrún Kolbrúnardóttir er gengin til liðs við tónlistar og menningar vefinn Albumm.com
Álfrún Kolbrúnardóttir er gengin til liðs við tónlistar og menningar vefinn Albumm.com

Albumm.com býður velkomna í teymið blaðakonuna, Content creator-inn og útgefandann Álfrúnu Kolbrúnardóttur.

Álfrún er ein af eigendum markaðsfyrirtækisins Flame.is og einn af stofnendum markaðfyrirtækisins Shesaid.so en hún mun koma til með að vinna náið að komandi verkefnum Albumm.com

Albumm.com hóf göngu sína í október 2014 og hefur allar götur síðan þá kappkostað við að fjalla ítarlega um íslenska tónlist og menningu. Nú leggur albumm land undir fót og ætlar sér að gera enn betur og er Albumm.com komið til að vera um ókomna tíð.

Mikil spenna ríkir innan herbúða Albumm og er Álfrún virkilega góð viðbót við öflugan hóp sem ætlar sér stóra hluti.

Ef þú hefur frétt fram að færa getur þú haft samband við Álfrúnu á meilinu Alfrun@albumm.is.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.