Lífið

Ninja minntist móður sinnar sem lést þegar hún var sjö ára

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ninja er aðeins sextán ára en komst þægilega áfram í næstu umferð í Idol.
Ninja er aðeins sextán ára en komst þægilega áfram í næstu umferð í Idol.

Annar þátturinn af Idol á Stöð 2 fór í loftið á Stöð 2 á föstudagskvöldið og var haldið áfram að fylgjast með keppendum í fyrstu áheyrnaprufu.

Fyrsti keppandi sem steig fyrir framan dómnefnd á föstudaginn var hún Ninja Sigmundsdóttir, 16 ára nemi frá Akranesi. Móðir hennar lést í bílslysi árið 2013 þegar Ninja var aðeins sjö ára.

„Mig langar mjög mikið að verða fræg söngkona og ég vona að mamma sé að fylgjast með mér hér í dag,“ segir Ninja fyrir prufuna. Hún vann söngvakeppnina Samfés fyrir þremur árum. Ninja flutti lagið Hallelujah eftir Leonard Cohen í prufunni. Einnig flutti hún bút úr laginu Love on the Brain með Rihanna sem heillaði dómnefndina upp úr skónum.

Hér að neðan má sjá þegar Ninja tók lag Rihanna en Ninja rauk áfram í keppninni.

Klippa: Ninja minntist móður sinnar sem lést þegar hún var sjö ára





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.