43 ár á valdastóli og með 99 prósent atkvæða Bjarki Sigurðsson skrifar 22. nóvember 2022 00:00 Teodoro Obiang hefur setið í valdastóli Miðbaugs-Gíneu í 43 ár. Getty/Wilfred Kajese Flokkur Teodoro Obiang, forseta Miðbaugs-Gíneu, hefur tryggt sér 99 prósent atkvæða í kosningunum þar í landi. Það stefnir allt í að þaulsetnasti forseti heims sitji áfram á valdastóli.
Obiang varð fyrst forseti árið 1982 en þrjú ár fyrir það var hann leiðtogi herstjórnar landsins. Hann hefur verið forseti í fjörutíu ár og einn mánuð, einum mánuði meira en Paul Biya, forseti Kamerún. Síðan árið 1982 hafa Miðbaugs-Gíneumenn fimm sinnum kosið sér forseta og hefur Obiang alltaf sigrað, iðulega með yfir níutíu prósent atkvæða. Á sunnudaginn gengu þeir að kjörborðinu og sem stendur hefur sitjandi forseti hlotið 99,7 prósent talinna atkvæða. CNN segir mótframbjóðanda Obiang hafa sakað forsetann um kosningasvindl. Hann vill meina að yfirvöld hafi neytt fólk til að kjósa Obiang og kosið fyrir hönd fólks sem ætlaði sér ekki að kjósa. Miðbaugs-Gínea er mikið jarðefnaeldsneytisríki og lifa þeir valdamestu í landinu afar dýrum lífsstíl á meðan sjötíu prósent íbúa glíma við fátækt.
Miðbaugs-Gínea Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira