Strákarnir í CM!OB segjast allir kyrfilega ráðfastir og spila þeir Warzone fyrir útrásina. Þeir sem skipa CM!OB eru:
Þórarinn Hjálmarsson, næstum því fertugur fjölskyldumaður úr Kópavogi sem segist með ágætis K/D hlutfall, miðað við sjónskekkju.
Árni Torfason, sem þykir nokkuð snöggur miðað við aldur og lendir iðulega í því að ruglast sé á honum og Clay Aiken. Árna þykir það leiðinlegt, fyrir Clay Aiken.
Ágúst Berg Arnarsson er einnig í hópnum. Hann býr í Sviss og segist elska franskan rjómaost. Frekari upplýsingar um Ágúst eru óþarfar.
Gauti Rafn Vilbergsson segist svera með Stokkhólms-heilkenni á háu stigi og að hann hafi það fínt á meginlandinu.
Sigurjón Guðjónsson er ZRG-notandi sem býr í New York. Hans framlag til CM!OB er, samkvæmt honum sjálfum, er að tryggja að hinir í hópnum geti ekki farið snemma að sofa.
Twitch-síðu strákanna má finna hér.
Streymið hefst klukkan níu í kvöld og má fylgjast með því í spilaranum hér að neðan eða á Twitch-síðu GameTíví.