Lífið

Söfnunarþátturinn Saman byggjum við nýtt Kvennaathvarf

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Söfnunarþátturinn Saman byggjum við nýtt Kvennathvarf er á dagskrá á Stöð 2 klukkan 19:10 í kvöld. Einnig er hægt að fylgjast með útsendingunni hér á Vísi.
Söfnunarþátturinn Saman byggjum við nýtt Kvennathvarf er á dagskrá á Stöð 2 klukkan 19:10 í kvöld. Einnig er hægt að fylgjast með útsendingunni hér á Vísi. Stöð 2

Í kvöld er sýndur á Stöð 2 söfnunarþátturinn Saman byggjum við nýtt Kvennaathvarf. Þátturinn er sýndur í opinni dagskrá og verður einnig hægt að fylgjast með útsendingunni í spilaranum hér fyrir neðan.

Yfir 700 konur leita árlega til Kvennaathvarfsins í leit að ráðgjöf og öruggu skjóli. Safnað er fyrir stærra og hentugra húsnæði. Í þættinum er rætt við starfskonur athvarfsins og konur með reynslu af ofbeldi í nánu sambandi. Einnig er rætt við stúlku sem dvaldi ásamt móður sinni í athvarfinu sem barn. 

Uppfært 20:30: 

Útsendingunni er lokið en söfnunarnúmerin eru enn opin. Þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Saman byggjum við nýtt Kvennaathvarf - Þátturinn í heild sinni

Árlega leita yfir 700 konur til Kvennaathvarfsins í leit að ráðgjöf og öruggu skjóli. Sett hefur verið af stað söfnun fyrir stærra og hentugra húsnæði undir yfirskriftinni Saman byggjum við nýtt Kvennaathvarf. Söfnunarþáttur er sýndur á Stöð 2 þann 10. nóvember. 

Söfnunarnúmerin má sjá hér fyrir neðan: 

  • -907-1010- 1.000 krónur
  • -907-1030 -3.000 krónur
  • -907-1050-5.000 krónur

Söfnunarreikningur fyrir frjáls framlög:

Kennitala 410782 – 0229 - Reikningsnúmer 515-14-7700



Tengdar fréttir

Færðu Kvennaathvarfinu tveggja milljóna styrk

N1 færði Kvennaathvarfinu tveggja milljóna króna styrk í dag. Forsvarsfólk athvarfsins safnar nú fyrir nýju húsnæði undir starfsemina sem veitir sífellt fleiri konum aðstoð við að losna úr ofbeldissamböndum. Sökum aukinnar aðsóknar, breiðari þjónustu og aðgengismála er brýn þörf fyrir nýtt húsnæði, en áætlað er að nýja húsnæðið muni kosta um 500 milljónir króna.

Listaverkauppboð til styrktar Kvennaathvarfinu komið í loftið

Listaverkauppboð til styrktar Kvennaathvarfinu hófst í dag en uppboðið er haldið í samvinnu við Gallerí Fold og Vísi. Má þar finna verk eftir okkar fremsta listafólk sem gaf málverk til málefnisins ásamt hópi einstaklinga sem gaf verk úr einkasafni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.