Lífið

Myndaveisla: „Mannlegur harmleikur og hugleiðing um réttlæti og hefnd“

Elísabet Hanna skrifar
Þetta er fyrsta bókin frá Skúla en ekki sú síðasta.
Þetta er fyrsta bókin frá Skúla en ekki sú síðasta. Aðsend

Rithöfundurinn Skúli Sigurðsson var að gefa út sína fyrstu bók sem ber heitið Stóri bróðir. Hún er saga um hefnd, réttlæti, kærleika, missi, ofbeldi og gamlar syndir. Kápa bókarinnar er úr smiðju Ragnars Helga Ólafssonar.

Blaðamaður heyrði í Skúla og fékk að heyra meira um sköpunarferlið:

Hvenær hófst ferlið að skrifa bókina?

Ég byrjaði á henni í desember 2018 en var þá búinn að vera með vísi að hugmyndinni í huga um skeið. Á þessum tíma bjó ég í Jórdaníu og vann fyrir Sameinuðu þjóðirnar og því gengu skrifin hægt. Ég lauk svo við handritið hér heima haustið 2021.

útgáfupartý Stóri bróðirKristinn Magnússon

Hvernig myndir þú lýsa þínu sköpunarferli?

Bæði Stóri bróðir og bók númer tvö, sem er nokkurn veginn tilbúin, byrjuðu sem „hvað ef?“ spurningar. Þetta voru agnarsmáar hugmyndir sem ég velti svo fyrir mér og bætti kjöti á beinin. Fljótlega vissi ég hvert ég stefndi með sögurnar og þegar á líður leiðir söguþráðurinn mann í mark, þetta skrifar sig eiginlega sjálft. 

Aðalmálið er að gefa sér tíma, setjast niður og skrifa.

Hvaðan kom hugmyndin?

Það má segja að hún komi víða að. Þjóðfélagsumræðan hér á landi og erlendis var mér efniviður, hvernig hún pólaríserast stundum og allt er málað í svörtu og hvítu. Ég notaði mikið bakgrunn minn sem blaðamaður og ýmsar hugleiðingar um glæpi og refsingu úr laganámi mínu, án þess að þetta sé sérstaklega heimspekileg saga. Að auki sótti ég innblástur í ýmsar bækur og ekki síður kvikmyndir.

Við nánari umhugsun kom hugmyndin eiginlega ekki víða að, hún kom til mín úr öllum áttum.

Í boðinu ræddi Skúli við stóra bróður sinn um Stóra bróður.Kristinn Magnússon

Hvernig myndir þú lýsa sögunni?

Ætli hún sé ekki ráðgáta og spennutryllir, í sirka jöfnum hlutföllum. Hún er líka mannlegur harmleikur og hugleiðing um réttlæti og hefnd. 

Fyrst og fremst er Stóri bróðir þó bara glæpasaga, krimmi og reyfari.

Hvað er framundan?

Aðallega það að koma Stóra bróður á framfæri og koma bókinni á siglingu í jólabókaflóðinu. Ég held að þetta sé saga sem fari vel í landann ef hann er til í að gefa nýjum höfundi séns.

Svo þarf að klára handritahandrit aðð að annarri bókinni. Drápa, útgefandinn minn, lofar því innan á kápunni á Stóra bróður að næsta bók komi út haustið 2023. Við látum það standast.

Hér að neðan má sjá fleiri myndir frá útgáfu bókarinnar:

Útgáfupartý.Kristinn Magnússon
Kristinn Magnússon
Kristinn Magnússon
Kristinn Magnússon
Kristinn Magnússon
Kristinn Magnússon
Bræðurnir ræddu bókina í veislunni.Kristinn Magnússon
Bræður.Kristinn Magnússon
Kristinn Magnússon
Kristinn Magnússon
Kristinn Magnússon
Kristinn Magnússon
Kristinn Magnússon
Kristinn Magnússon
Kristinn Magnússon
Kristinn Magnússon

Tengdar fréttir

Myndaveisla: Forsætisráðherra gefur út glæpasögu

Það var líf og fjör í útgáfuteiti glæpasögunnar Reykjavík í Iðnó í gær og má með sanni segja að höfundar bókarinnar séu óvanalegt teymi en það eru þau Ragnar Jónasson, rithöfundur, og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra. Lífið á Vísi tók púlsinn á þessu tvíeyki.

Myndaveisla frá Idol prufunum

Fyrstu dómaraprufum í Idolinu er lokið og hafa örlög þeirra sem komust í þær verið ráðin. Það eru þau Herra Hnetusmjör, Birgitta Haukdal, Daníel Ágúst og Bríet sem sitja í dómarasætunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.