Sport

Dagskráin: NFL, fótbolti, körfubolti, golf og rafíþróttir

Atli Arason skrifar
Valur tekur á móti Stjörnunni í Bestu-deild karla í dag.
Valur tekur á móti Stjörnunni í Bestu-deild karla í dag. Diego

Það ættu allir að finna sér eitthvað við sitt hæfi á sport rásum Stöðvar 2 í dag þegar 14 viðburðir verða í beinni útsendingu úr nokkrum mismunandi íþróttagreinum.

Stöð 2 Sport

Klukkan 19.00 tekur Valur á móti Stjörnunni í Bestu-deild karla.

Stúkan gerir svo upp alla leiki 25. umferðar í Bestu-deildinni klukkan 21.15.

Stöð 2 Sport 2

Inter og Salernitana mætast í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta klukkan 10.20.

Klukkan 12.50 hefst útsending af viðureign Lazio og Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni.

Viðureign Dolphins og Vikings í NFL deildinni hefst klukkan 17.00.

Chiefs og Bills mætast í NFL deildinni í beinni útsendingu klukkan 20.20.

Stöð 2 Sport 3

Spezia og Cremonese eigast við í ítölsku úrvalsdeildinni klukkan 12.50.

Klukkan 15.50 hefst leikur Napoli og Bologna í ítölsku úrvalsdeildinni.

Leikur Hellas Verona og AC Milan í ítölsku úrvalsdeildinni fer af stað klukkan 18.35.

Stöð 2 Sport 4

Örebro og Kristianstad leika við hvort annað í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu kvenna klukkan 12.55.

Klukkan 16.50 hefst útsending af leik Fram og ÍBV í Bestu-deild karla.

Stöð 2 Sport 5

Andalucía Masters á DP World Tour er í beinni útsendingu klukkan 11.30.

Real Madrid og Joventut Badalona mætast í spænsku ACB deildinni í körfubolta klukkan 16.20.

Stöð 2 eSport

Sandkassinn verður í beinu streymi klukkan 21.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×