Bransadagar og pallborðsumræður í Ráðhúsinu í tilefni af RIFF Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 7. október 2022 07:00 Bransadagar RIFF eru nú í fullum gangi. RIFF er nú haldin í nítjánda skiptið og hefur hún skipað sér á sess sem ein eftirsóttasta kvikmyndahátíð Norðurlanda. RIFF Hátt í 200 manns úr kvikmyndabransanum, blaðamenn, framleiðendur og kvikmyndaleikstjórar eru staddir á Bransadögum RIFF sem standa nú yfir í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Bransadagar RIFF eru röð viðburða og erinda sem haldin eru á hátíðinni. Meginmarkmið þeirra er að skapa vettvang fyrir miðlun og dreifingu hugmynda og kynningar á milli íslensks og alþjóðlegs kvikmyndaiðnaðar, með áherslu á Norðurlönd. Aldrei hafa fleiri tekið þátt í verkefnum Bransadaga en auk fyrrgreindra taka 40 ungir kvikmyndagerðarmenn þátt í verkefnasmiðju. Ný verk kynnt Bransadagar voru settir með kynningum á verkum í vinnslu þar sem fjöldi íslenskra framleiðenda kynnti verk sín fyrir erlendum framleiðendum og söluaðilum. Markmið bransadaga að kynna það sem vel er gert hér á landi og í fyrradag voru kynnt ný íslensk verk á vinnslustigi, Napóleonsskjölin eftir Óskar Þór Axelsson, Natatorium eftir Helenu Stefáns Magneudóttur, og Útlaginn eftir Andra Frey Viðarsson og Árna Sveinsson, auk margra annarra. Kanadíski leikstjórinn og framleiðandinn Sylvie Von Brabant kynnt einnig verk í vinnslu, bæði fyrir sjónvarp og kvikmynd, sem heitir, When Sprakkar Rise Up og fjallar um forystukonur á Íslandi meðal annars Katrínu Jakobsdóttur, Katrínu Oddsdóttur og Katrínu Pétursdóttur í Lýsi. Framleiðendaþing fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem stærstu norrænu framleiðslufyrirtækin, spænsk framleiðslufyrirtæki og íslensk, bera saman bækur sínar og leita eftir samvinnumöguleikum. Fjöldamargir erlendir sölu- og dreifingaraðilar á einnig á Bransadögum til að kynna sér verkefni og kvikmyndalandið Ísland, meðal annars frá MK2 sem er eitt virtasta fyrirtækið bransanum, Slot Machine og fleiri. Erlendir fjölmiðlar mættir á RIFF Þá eru hér einnig fulltrúar stórra erlendra kvikmyndahátíða svo sem frá Fenyjarhátíðinni, CPH Docs, stærstu heimildarmyndahátíð Norðurlanda, Tribeca hátíðinni og fleirum, auk blaðamanna frá Guardian, Vogue, INSIDER og Cineuropa svo einhverjir séu nefndir. Í pallborðsumræðum taka þátt fulltrúar stórra norræna framleiðenda, Dyveke Björkly Graver, framkvæmdastjóri eins stærsta framleiðslufyrirtækisins í Noregi, Oslo pictures. Jasmine Naghizadeh, framleiðandi Nimbus films, og Mark Lwoff frá Bufo films í Finnlandi. Einnig taka til máls stærstu framleiðendur Spánar, meðal annars Carlos Pardo Ros, Marina Lameira og Rafa Molés Vilar. Fjöldi íslenskra framleiðenda halda einnig erindi á þinginu þeirra á meðal, Anton Máni Svansson, Elvar Aðalsteins, Heather Millard, Sigurjón Sighvatsson, Hlín Jóhanness, Birgitta Björnsdóttir og Agnes Johansen. Erlendir gestir gera sér einnig ferð í Heiðmörk og leggja Benedikt Erlingssyni, leikstjóra, lið við gróðursetningu og ræktun sérstaks kvikmyndaskógar sem er einmitt stofnsettur til þess að draga úr umhverfismengandi áhrifum kvikmyndaiðnaðarins til samræmis við umhverfisstefnu RIFF. Gestir munu einnig heimsækja tökustaði og stúdíó og gera sér ferð í Gufunesið þar sem verið er að taka upp þættina True Detective. Pallborðsumræða í dag Sérstök áhersla hefur verið á áhrif kvikmyndagerðar á samfélagsumræðu með samvinnu við samfélagshópa sem beita sér fyrir einstökum málaflokkum. Bransadagar enda í ár með stóru málþingi Bakslag. Hvað í f******** er í gangi? Málþingið dregur saman ólík umfjöllunarefni mynda þar sem unnið er út frá framlagi kvikmyndagerðar til mannréttindaþróunar í breiðum skilningi. Mál er varða, umhverfismál, sjálfbærni, hinsegin/kynsegin og femínísk málefni, geðrækt, málfrelsi, fólksflutninga, aðgengi (fatlaðir), ofríki og popúlisma, – minnkandi rými borgaralegs samfélags. Umfjöllunarefnin verða þar til umræðu í panel, skipuðum sérfræðingum um þessi málefni, fræðimönnum, baráttufólki og kvikmyndagerðarfólki. Bogi Ágústsson, fréttamaður, stýrir umræðum og við pallborðið verða, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, Sóley Tómasdóttir, Kynja- og fjölbreytileikafræðingur. Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, Héðinn Unnsteinsson, stefnumótunarsérfræðingur og talsmaður bættra geðheilbrigðismála, Ingileif Friðriksdóttir, kvikmyndagerðarkona og LGTBQ+ aðgerðarsinni, Thorgerdur María Þorbjarnardóttir, fyrrverandi formaður Ungra umhverfissinna og stjórnarmeðlimur í Landvernd, og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, og formaður Hringborðs Norðurslóða. Málþingið fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag föstudaginn 7. október klukkan 13.30 og aðgangur er ókeypis.
Mest lesið Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Lífið Halla Hrund og uglurnar þrjár Lífið Sbarro tekur næsta skref: Heitar pizzur allan sólarhringinn Lífið samstarf Útför Megasar Lífið Sam Smith trúlofað Lífið „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Lífið Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun Lífið Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Fleiri fréttir Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Sjá meira