Zerq sigldi sigrinum heim Snorri Rafn Hallsson skrifar 30. september 2022 17:33
Leikurinn fór fram í Inferno þar sem SAGA vann hnífalotuna og byrjaði í vörn. Bjarni kom sprengjunni fyrir af miklu öryggi fyrir NÚ í fyrstu lotunni en einhvern veginn tókst liðinu ekki að tengja saman lotur fyrr en undir lok hálfleiks. Zerq og félagar í SAGA höfðu því yfirhöndina mest allan hálfleikinn og innsigluðu forskotið með þriggja lotu runu í lok hálfleiks þar sem SAGA hélt sig djúpt á kortinu og hleypti NÚ ekki inn á sprengjusvæðin. Staða í hálfleik: NÚ 6 – 9 SAGA Skoon var einn eftir gegn þremur leikmönnum NÚ í skammbyssulotunni en fór létt með að fella þá alla. SAGA-maskínan var komin í gang og vann liðið fyrstu fjórar lotur síðari hálfleiks til að komast í stöðuna 13–6. Liðið fór hratt um kortið, hélt vopnum sínum og sótti beitt. Undir lokin skiptust liðin á lotum en SAGA hélt forskotinu og vann. Zerq var atkvæðamestur fyrir SAGA með 23 fellur en Skoon var fast á hælana hjá honum með 22. CLVR lauk leik með 21 fellu fyrir NÚ. Lokastaða: NÚ 9 – 16 SAGA Með sigrinum er SAGA jöfn NÚ í deildinni og bæði lið með 4 stig eftir tvo sigra og eitt tap. Eftir leikinn sagði DOM, leikmaður SAGA, að það væri góður andi í liðinu. Kortaúrval liðsins hefur breikkað og að liðið myndi standa sig vel gagnvart flestum liðum í deildinni, stefnan sé sett á annað eða þriðja sætið innan skamms. Næstu leikir liðanna: NÚ – Þór, fimmtudaginn 6/10 klukkan 20:30 Viðstöðu – SAGA, fimmtudaginn 6/10 klukkan 21:30 Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.
Rafíþróttir Ljósleiðaradeildin Tengdar fréttir RavlE og félagar í NÚ rúlluðu LAVA upp NÚ og LAVA mættust í 2. umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO. LAVA var pakkað saman af Þór í síðustu viku en NÚ hafði betur gegn Fylki í þrefaldri framlengingu. 23. september 2022 14:00 Peterrr í lykilhlutverki hjá Þórsurum Í síðari leik gærkvöldsins mættust Þór og SAGA í Ljósleiðaradeildinni í CS:GO. 21. september 2022 16:02
RavlE og félagar í NÚ rúlluðu LAVA upp NÚ og LAVA mættust í 2. umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO. LAVA var pakkað saman af Þór í síðustu viku en NÚ hafði betur gegn Fylki í þrefaldri framlengingu. 23. september 2022 14:00
Peterrr í lykilhlutverki hjá Þórsurum Í síðari leik gærkvöldsins mættust Þór og SAGA í Ljósleiðaradeildinni í CS:GO. 21. september 2022 16:02
Rifjuðu upp þegar Gummi spurði strákana eftir tvær umferðir hvort KR gæti orðið meistari Íslenski boltinn
Rifjuðu upp þegar Gummi spurði strákana eftir tvær umferðir hvort KR gæti orðið meistari Íslenski boltinn