Toyota hefur lengi talað fyrir því að rafvæðing sé ekki eina leiðin til að ná fram markmiðum um umhverfisvænni samgöngur. En á sama tíma er Toyota á barmi þess að setja fjölda rafbíla á markað. Það verður nauðsynlegt ef framleiðandinn ætlar að halda sér í umræðunni og ekki sitja eftir á meðan bransinn breytist. Samkeppnin er hörð. Stórir framleiðendur eins og Volkswagen, Kia, Hyundai og Stellantis hafa allir þegar sett rafbíla á markað og standa því skör framar en Toyota eins og staðan er.
Myndband af YouTube síðunni Real Channel Automotive sem virðist sýna myndir af bZ3 sem hafa lekið frá Toyota.
Flaggskipið frá Toyota verður jepplingur á stærð við Rav4 sem heitir bZ4X og framundan er að framleiða fyrstu bílana. Enn er óvíst hvenær viðskiptavinir fá fyrstu bílana. Þegar Toyota kynnti plön sín um rafvæðingu í lok síðasta árs, sagði framkvæmdastjóri Toyota, Akio Toyoda að stallbakur yrði næstur í bZ línunni.
Bíllinn mun væntanlega koma til Evrópu á árinu 2024. Markmiðið verður að skora Tesla Model 3 á hólm og stela markaðshlutdeild frá öðrum framleiðendum sem einnig ætla sér að koma með bíla í sambærilegum stærðarflokki á markað á næstu mánuðum og árum.
Bíllinn er unninn í samstarfi við BYD sem er kínverkst fyrirtæki sem býr yfir rafhlöðutækni sem heitir Blade og er litíum járnfosfat rafhlaða, þær rafhlöður taka minna pláss en aðrar sem eru nú notaðar og gæti bíllinn grætt innra rými á því.
Drægni verður um 420 kílómetrar. Rafhlaðan er 64,5 kWh og bíllinn er hannaður með skilvirkni í huga.
Fréttin hefur verið uppfærð.