Peterrr í lykilhlutverki hjá Þórsurum Snorri Rafn Hallsson skrifar 21. september 2022 16:02
Leikur Þórs og SAGA fór fram í Ancient kortinu og Jón tryggði Þór réttinn í hnífalotunni til að velja sér hlið. Þór byrjaði í vörn (Counter-terrorists). Peterrr fór á kostum í skammbyssulotunni með þrefaldri fellu og átti stóran þátt í því að Þór vann einnig þá næstu. Þórsarar voru afar sannfærandi í upphafi leiksins og komust í 5–0 áður en DOM krækti í fyrsta stigið fyrir SAGA. Eftir það var leikurinn nokkuð jafn þar sem SAGA gaf ekkert upp um ætlanir sínar og Þór þurfti að renna blint í sjóinn. Zerq og DOM brutu efnahag Þórs á bak aftur og ADHD fór á kostum á vappanum. SAGA náði að jafna en Peterrr var í lykilhlutverki í að vinna forskot Þórs upp aftur. Staða í hálfleik: Þór 9 – 6 SAGA Þór hélt uppteknum hætti og komst í stöðuna 15–6 með snjöllum reyksprengjum til að tryggja sér yfirráð á kortinu og fella andstæðingana. Allir leikmenn liðsins nema Rean hittu vel úr skotum sínum og var sigurinn svo gott sem í höfn þegar SAGA tók loks við sér í vörninni. DOM, Skoon og WZRD röðuðu grimmir inn fellunum á meðan ADHD lét vappann syngja í endurtökum sem skiluðu SAGA góðum banka og komu í veg fyrir að Þór kláraði leikinn. Skoon átti góðar opnanir sem sköpuðu SAGA tækifæri og í 30. lotu rauf DOM 30-múrinn til að koma leiknum í framlengingu. Staða eftir venjulegan leiktíma: Þór 15 – 15 SAGA Jón batt þó enda á 9-lotu runu SAGA í fyrstu lotunni og fór hamförum í næstu lotu til að stráfella leikmenn SAGA og gera þá blanka. SAGA virtist loksins eiga séns í 34. lotu en Rean braut það á bak aftur og tryggði Þór sigurinn í þessum æsispennandi leik. Lokastaða: Þór 19 – 15 SAGA Næstu leikir liðanna: Þór – Fylkir, þriðjudaginn 27/9, klukkan 19:30 SAGA – NÚ, fimmtudaginn 29/9, klukkan 20:30 Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.
Rafíþróttir Ljósleiðaradeildin Þór Akureyri Tengdar fréttir 1. umferð CS:GO lokið: Staðan og næstu leikir 1. umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO lauk með sigri meistaranna í Dusty á nýliðum Breiðabliks. Þór, NÚ, SAGA og Ármann unnu einnig sína leiki. 17. september 2022 13:01 ADHD skaut sína menn til sigurs í Ancient Það var mikil spenna í loftinu þegar SAGA og TEN5ION hleyptu 1. umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO af stað. 14. september 2022 14:01 Miskunnarlaus Minidegreez tryggði Þór sigur á LAVA Í öðrum leik Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO mættust Þór og LAVA, liðin sem höfnuðu í 2. og 3. sæti á síðasta tímabili. 14. september 2022 16:00
1. umferð CS:GO lokið: Staðan og næstu leikir 1. umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO lauk með sigri meistaranna í Dusty á nýliðum Breiðabliks. Þór, NÚ, SAGA og Ármann unnu einnig sína leiki. 17. september 2022 13:01
ADHD skaut sína menn til sigurs í Ancient Það var mikil spenna í loftinu þegar SAGA og TEN5ION hleyptu 1. umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO af stað. 14. september 2022 14:01
Miskunnarlaus Minidegreez tryggði Þór sigur á LAVA Í öðrum leik Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO mættust Þór og LAVA, liðin sem höfnuðu í 2. og 3. sæti á síðasta tímabili. 14. september 2022 16:00
Rifjuðu upp þegar Gummi spurði strákana eftir tvær umferðir hvort KR gæti orðið meistari Íslenski boltinn
Rifjuðu upp þegar Gummi spurði strákana eftir tvær umferðir hvort KR gæti orðið meistari Íslenski boltinn