32 látnir eftir eldsvoða á karókíbar í Víetnam Atli Ísleifsson skrifar 8. september 2022 07:45 Karókístaðinn er að finna í hverfinu Thuan An, norður af Ho Chi Minh. EPA Alls eru 32 nú látnir eftir eldsvoða sem kom upp á karókíbar ekki langt frá víetnömsku borginni Ho Chi Minh á síðastliðið þriðjudagskvöld. Gríðarmikill eldur kom upp og varð mikill fjöldi gesta innlyksa og þá neyddust aðrir til að stökkva út um glugga á þriðju hæð byggingarinnar.
Erlendir fjölmiðlar segja að mikill reykur hafi myndast sem hafi komið í veg fyrir að fólk gæti flúið niður stigagang og sömuleiðis hindrað för út um neyðarútgang. Fjölmargir gestir og starfsmenn staðarins leituðu því út á svalir byggingarinnar og stukku þaðan niður. Í fyrstu bárust upplýsingar frá yfirvöldum um að tólf væru látnir. Tala látinna var svo hækkuð í 23 og svo 32 í morgun.Í hópi hinna látnu eru sautján karlar og fimmtán konur. Pham Minh Chinh, forsætisráðherra Víetnams, hefur farið fram á ítarlega rannsókn á eldsvoðanum og sömuleiðis að gerð verði öryggisúttekt á stöðum sem þessum til að draga úr líkum á að harmleikurinn geti efturtekið sig. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá rafmagni, en karókístaðinn er að finna í hverfinu Thuan An, norður af Ho Chi Minh. Í frétt Guardian segir að um sé að ræða mannskæðasta eldsvoðann í sögu landsins, en sá fyrri varð þegar þrettán manns fórust í eldsvoða í íbúðabyggingu í Ho Chi Minh árið 2018.
Víetnam Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira