Rivian R1S loksins afhendur kaupendum Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 29. ágúst 2022 07:00 Rivian R1S. Rafmagnsjeppinn R1S frá Rivian er loksins kominn í hendur almennra kaupenda. Hingað til hafa allar afhendingar verið til starfsfólks Rivian. Fyrsta afhendingin var í síðustu viku.
Bíllinn er búinn að vera í framleiðslu í nokkra mánuði, framkvæmdastjóri Rivian, RJ Scaringe fékk sinn afhendan í desember á síðasta ári. Einn af þessum bílum var afhendur einum notanda á Rivian spjallborðinu Fletch. Sá er í Pensilvaníu og skrifaði viðkomandi um sinn fyrsta dag með bílnum. Bíllinn er með 260 mílna drægni eða um 418 km. Hægt er að fá stærri rafhlöðuna sem ætti að draga um 515 km. „Hafandi aldrei ekið rafbíl fyrr en seinnipartinn í dag, þá myndi ég lýsa því þannig að þetta er eins og að vera í tölvuleik sem hefur ekki náð að beisla eðlisfræðina. Mér finnst hröðunin eins og hún ætti ekki að vera möguleg (sérstaklega á svona stórum, þungum hlut). Ég er búinn að aka um 100 mílur (160 km) í dag eftir afhendinguna (hann kom með 11 mílur á mælinum), á bæði almennum götum og hraðbrautum.“ Á þessum tíma í fyrra sagði Rivian að afhendingar til viðskiptavina myndu hefjast í mars eða apríl árið 2022. Hins vegar hafa vandræði með íhluti sett áætlanir Rivian úr skorðum. Rivian R1S kostar frá 78.000 dollurum (10,7 milljónir króna). Sem þýðir að bíllinn mun rétt sleppa undir endurgreiðslumarkið fyrir rafbíla í Bandaríkjunum. Rivian afhenti 5694 bíla á fyrri helmingi ársins. Framleiðslugeta Rivian hefur aukist gríðarlega. Rivian segist enn vera á góðri leið með að ná markmiðinu um 25.000 afhendingar á árinu. Báðir bílar framleiðandans, R1S og pallbíllinn R1T eru vinsælir og tugir þúsunda pantana eru til staðar fyrir hvora tegund.
Vistvænir bílar Mest lesið Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Erlent Miklar hreinsanir fyrirhugaðar í borgarstjórnarliði xD Innlent Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Erlent Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður sagt geta orðið strax í ágúst Innlent Framboðið heitir Vinstrið og Finnur verður í sjötta sæti Innlent Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Leggur til að dánarbú án lögerfingja renni í almannaheillasjóð Innlent Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Erlent Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Erlent Fleiri fréttir Tesla Cybertruck og Ferrari í Vestmannaeyjagöngum Sjá meira