Forsætisráðherra Taílands vikið tímabundið úr embætti Atli Ísleifsson skrifar 24. ágúst 2022 07:51 Deilt er um hvort forstætisráðherrann Prayuth Chan-ocha hafi setið lengur en þau átta ár sem stjórnarskrá landsins gerir ráð fyrir. AP Æðsti dómstóll Taílands hefur tilkynnt að forsætisráðherranum Prayuth Chan-ocha hafi verið vikið tímabundið úr embætti.
Dómstóllinn hyggst taka til meðferðar kæru sem snýr að því hvort að Prayuth Chan-ocha hafi setið lengur í embætti en lög landsins geri ráð fyrir. Meirihluti dómara var fylgjandi því að forsætisráðherranum yrði vikið frá þar til að niðurstaða fæst í málinu. Ekki er að fullu ljóst hver verði starfandi forsætisráðherra, en lögum samkvæmt ætti það að verða aðstoðarforsætisráðherrann Prawit Wongsuwan. Hann er náinn bandamaður Prayuth Chan-ocha og hluti af sömu klíku innan taílenska hersins sem kom Prayuth Chan-ocha í forsætisráðherrastólinn að loknu valdaráni hersins. Stjórnarandstaðan í Taílandi vill meina að Prayuth Chan-ocha ætti að fara frá þar sem stjórnarskrá landsins geri ráð fyrir að forsætisráðherra geti einungis setið í átta ár í embætti. Vill stjórnarandstaðan meina að þessi átta ár hafi runnið sitt skeið síðastliðin þriðjudag. Stuðningsmenn Chan-ochas eru þó ekki sammála þessari túlkun þar sem ný stjórnarskrá hafi tekið gildi 6. apríl 2017 og því sé rétt að miða við þá dagsetningu.
Taíland Mest lesið Loka fyrir umferð til að rannsaka banaslys Innlent Fauk í Kristrúnu í fyrirspurnartíma Innlent Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Innlent Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Innlent Rúta skíðlogar í Hafnarfirði Innlent Neita öll sök í Reykholtsmálinu Innlent Pósturinn sendir starfsmanninn í leyfi Innlent Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Erlent Tilkynnt um mann með sverð Innlent Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Erlent Fleiri fréttir Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Sjá meira