Hér má sjá myndbandið:
Blaðamaður tók púlsinn á Jóhanni Kristófer.
„Biggi Veira hafði samband við mig í sumar og sagði mér frá því að GusGus væru að fara gefa út smáskífu með remixi af gömlu Italo Disco lagi sem heitir Bolero. Hann langaði að gera myndband og verandi mikill aðdáandi Æði vildi hann fá þá í myndbandið og mig til að leikstýra því,“ segir Jóhann um upphaf samstarfsins.
Lagið kom út á labeli sem heitir The Weird & The Wonderful og auk Bigga Veiru syngur John Grant á því.
Dýrmæt lexía
Söguþráðurinn er með sanni áhugaverður:
„Í myndbandinu sjáum við þá Patta Jaime, Bassa Maraj og tvíburanna Gunnar og Sæmund í myndatöku hjá hinum geðþekka ljósmyndara Franz Aragosta, leikinn af Hákoni Jóhannessyni. Patti virðist eiga erfitt uppdráttar, finnst allt ómögulegt og kemur illa saman við ljósmyndarann sem og alla aðra á settinu.
Óþægindi hans stigmagnast og þegar þau ná hámarki hverfur hann inn í aðra vídd þar sem Veiran sjálf kennir honum dýrmæta lexíu,“
segir Jóhann.

Æði gengið augljóst val
Að sögn Bigga Veiru kom ekkert annað til greina en að fá Æði strákana í lið með sér:
„Hold me in your arms again eða Bolero eins og frumútgáfan heitir, er fyrir mér gleðismellur fyrir ástina í sjálfum þér, þá er ég að meina þá ást sem þú gefur öðrum.
Að elska óeigingjarnt krefst sjálfsástar sem er einungis möguleg ef sá lifir ekki í skömm. Sumir eru hataðir fyrir það sem þeir eru í kjarnanum.
Æði gengið var augljóst fyrsta val í verkið.“

Klassískur boðskapur
„Boðskapur myndbandsins er fyrir mér klassískur, að komast í gegnum ótta og inn í ástina,“ segir Jóhann og bætir við: „Þegar manneskjur leyfa sér að vera, sleppa takinu á kvíða og endalausum hugsunum byggðum á því sem áður hefur gengið, þá er allt hægt.“
Myndbandið var skotið og klippt af Tómasi Sturlusyni, um búninga og listræna stjórnun sá Júlía Gronvaldt og þær Kolbrún Anna Vignisdóttir og Elín Arna Ringsted sáu um förðun.