Innlent

35 þúsund nýjar íbúðir til að skapa jafnvægi á markaði

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Sigurður Ingi skrifaði undir rammasamninginn í dag.
Sigurður Ingi skrifaði undir rammasamninginn í dag. HMS

Ríki og sveitarfélög ætla sér að byggja 35 þúsund nýjar íbúðir á næstu tíu árum og var ammasamningur um það markmið undirritaður í dag. Íbúðunum er ætlað að mæta fyrirsjáanlegri íbúðaþörf og skapa langþráð jafnvægi á húsnæðismarkaði.

Í samningnum sammælast ríki og sveitarfélög um stefnu og markvissar aðgerðir til að tryggja uppbyggingu íbúða í samræmi við þörf ólíkra hópa. Í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu segir að þetta sé í fyrsta sinn sem ríki og sveitarfélög gera með sér samkomulag um sameiginlega sýn á aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði. 

Sig­urður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, skrifaði und­ir samn­ing­inn ásamt Al­dísi Haf­steins­dótt­ur, for­manni Sam­bands ís­lenskra sveit­ar­fé­laga, og Her­manni Jónas­syni, for­stjóra Hús­næðis- og mann­virkja­stofn­un­ar

30 prósent verði hagkvæmar íbúðir

Sigurður segir eitt stærsta áherslumálið í sáttmála ríkisstjórnarinnar vera að ná jafnvægi á húsnæðismarkaði og koma í veg fyrir þær miklu sveiflur sem hafa einkennt markaðinn síðustu ár.

„Afleiðingar þessara sveiflna eru meðal annars þær að kynslóðir fyrstu kaupenda eiga erfitt með að komast inn á húsnæðismarkað. Staðan kallar á samstillt átak og ég fagna því að ríki og sveitarfélög hafi nú náð saman um sameiginlega sýn á mikilvægustu verkefnin framundan“

Hann segir sérstaklega ánægjulegt að 30 prósent af heildaruppingu verði hagkvæmar íbúðir á viðráðanlegu verði og 5 prósent verði félagsleg húsnæðisúrræði til að bæta stöðu viðkvæmra hópa á markaðnum. 

Næsta skref samningar við ríkið

Aldís Hafsteinsdóttir, formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga tekur í sama streng. Næstu skref segir hún vera að sveitarfélögin geri sjálf samninga við ríkið á grundvelli rammasamningsins þar sem vænta má fjárstuðning frá ríkinu.

Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, kynnir rammasamninginn á kynningarfundi hjá HMS í dag.hms

„Sambandið mun styðja við þá samningsgerð og fylgja eftir í góðri samvinnu við HMS þeirri aðgerðaáætlun sem er hluti þessa rammasamnings,“ er haft eftir Aldísi.

Hermann Jónasson, forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar segir vandaða áætlanagerð og eftirfylgni með rauntímaupplýsingum forsendu þess að ná stöðugleika á húsnæðismarkaði. 

„Við hjá HMS hlökkum til að eiga í framhaldinu gott samstarf við sveitarfélögin um þetta mikilvæga mál sem snertir hvert heimili á landinu og allir geta tengt við með einum eða öðrum hætti.“


Tengdar fréttir

Byggja þarf um 35 þúsund í­búðir á næstu tíu árum

Starfshópur stjórnvalda um húsnæðismál kynnti í dag skýrslu um úrbætur á húsnæðismarkaði til að auka framboð og stuðla að stöðugleika, bæði til skamms og langs tíma. Hjá starfshópnum er mikil samstaða um mikilvægi þess að tryggja aukið framboð íbúða til að stuðla að stöðugleika á húsnæðismarkaði.

„Þetta lítur bara alveg skelfi­lega út“

Skelfileg staða blasir við á leigumarkaði að sögn formanns VR. Ísland er aftarlega á merinni þegar kemur að heilbrigðum húsnæðismarkaði og í málaflokknum er þörf á efndum, en ekki nefndum.

Vona að lífeyrissjóðirnir komi inn í félagið með fjármagn

Verkalýðshreyfingin varar við ófremdarástandi á leigumarkaði og hefur komið á fót nýju leigufélagi til að bregðast við stöðunni. Vonir eru bundnar við að lífeyrissjóðirnir taki þátt og að áhersla verði lögð á langtímasjónarmið, líkt og á Norðurlöndunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×