Tónlist

Ásgeir Trausti frumsýnir glænýtt tónlistarmyndband á Vísi á morgun

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Tónlistarmaðurinn Ásgeir frumsýnir tónlistarmyndband á Lífinu á Vísi á morgun.
Tónlistarmaðurinn Ásgeir frumsýnir tónlistarmyndband á Lífinu á Vísi á morgun. Stilla úr myndbandi

Tónlistarmaðurinn Ásgeir er að senda frá sér glænýtt lag og tónlistarmyndband. Myndbandið verður frumsýnt á Lífinu á Vísi á morgun klukkan 07:30.

Lagið heitir Snowblind og er fyrsta lag af væntanlegri plötu. Fjórða plata Ásgeirs, Time On My Hands, kemur út 28. október næstkomandi og er gefin út af One Little Independent Records. Leikstjóri tónlistarmyndbandsins við Snowblind er Erlendur Sveinsson.

„Markmiðið var að skapa sjónrænt efni fyrir þetta magnaða lag og að byggja upp kraftmikla atburðarrás sem byggir upp ímyndunarafl áhorfenda,“ segir Erlendur.

Myndbandið er unnið í samstarfi við Icelandair.


Tengdar fréttir

Sá aldrei neitt annað fyrir sér en að verða tónlistarmaður

Tónlistarmaðurinn Ásgeir, áður þekktur undir listamannsnafninu Ásgeir Trausti, fagnar því í ár að tíu ár eru liðin frá því fyrsta platan hans Dýrð í Dauðaþögn kom út. Í tilefni af þessum tímamótum ákvað hann að gefa plötuna aftur út og ásamt því mun hann halda stórtónleika í Eldborg, Hörpu þann 27. ágúst næstkomandi. Það er ýmislegt fleira á döfinni í tónlistarheimi Ásgeirs en þekkt íslenskt tónlistarfólk kemur til með að endurgera þekktustu lög hans á plötu sem enn á eftir að tilkynna hvenær kemur út. Blaðamaður hitti Ásgeir í kaffibolla og fékk að taka púlsinn á honum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.