Lífið

MUI: Stúlkurnar sem keppast um titilinn í ár

Elísabet Hanna og Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifa
Hér má sjá hluta af hópi þeirra stúlkna sem keppa í Miss Universe Iceland í ár. Keppendurnir verða sautján talsins. 
Hér má sjá hluta af hópi þeirra stúlkna sem keppa í Miss Universe Iceland í ár. Keppendurnir verða sautján talsins.  Arnór Trausti

Miss Universe Iceland keppnin verður haldin í sjöunda sinn þann 24. ágúst í Gamla bíó. Keppendur í ár eru sautján talsins og eru á aldrinum átján til tuttugu og átta ára. Alþjóðleg dómnefnd sér um að velja þá stúlku sem stendur uppi sem sigurvegari.

Stelpurnar hafa æft saman fyrir keppnina í allt sumar í aðstöðu hjá Reebok Fitness og munu keppendur gista saman í tvær nætur fyrir lokakvöldið á Center hotel plaza.

Ásamt því að krýna MUI sem mun keppa fyrir hönd Íslands í Miss Universe 2022 verða einnig aðrir aukatitlar í boði. Það má helst nefna: Vinsælasta stúlkan, Miss Eskimo Model, Miss ReebookFitness, Miss Max Factor, Miss Adidas.is, Miss Ak Pure Skin og Directors Choice.

Keppendur eru sem áður segir sautján talsins en þær eru:

Jóna Vigdís Guðmundsdóttir, Kolbrún Perla Þórhallsdóttir, Hrafnhildur Haraldsdóttir, Elva Björk Jónsdóttir, Tinna Elísa Guðmundsdóttir, Sylwia Sienkiewicz, Ísabella Þorvaldsdóttir, Sunna Dögg Jónsdóttir, Elsa Rún Stefánsdóttir, Elísabet Tinna Haraldsdóttir, Maríanna Líf Swain, Erika Bjarkadóttir, Alexandra Andreyeva Tomasdottir, Karen Ósk Kjartansdóttir, Jónína Sigurðardóttir, Erla Bergmann Einarsdóttir og Þorbjörg Kristinsdóttir.

Fóru í myndatöku

„Þetta undirbúningsferli er alltaf svo skemmtilegt og það er svo gaman að sjá hópinn tengjast. Það myndast rosalega sterk og falleg vináttubönd á hverju ári - sem endast út ævina. Ég tala af reynslu, þar sem ég kynntist sumum af mínum bestu vinkonum í fegurðarsamkeppni fyrir 20 árum“ segir Manuela Ósk Harðardóttir annar eigandi keppninnar hér á landi. 

Reykjavík MakeUp School sá um förðun fyrir myndatöku hjá stelpunum.Arnór Trausti

Á dögunum fór fram myndataka sem var í höndum Arnórs Trausta, fatahönnuðurinn Sædís Ýr sá um að klæða stúlkurnar, Hárakademían og Blondie hársnyrtistofa sá um hárið á stelpunum og Reykjavík MakeUp School sá um förðunina. Myndirnar birtast á Lífinu á Vísi á næstu dögum og vikum samhliða viðtölum við hvern keppanda. 


Tengdar fréttir

Hulda hreppti annað sætið í World Top Model keppninni

Fegurðardrottningin Hulda Vigdísardóttir hreppti annað sætið í World Top Model keppninni sem fór fram um helgina. Keppnin var haldin í New York og er hluti af tískuvikunni þar. Þetta var í fyrsta skipti sem keppandi frá Íslandi tekur þátt.

Hugrún Birta í vali dómnefndar fyrir Miss World

Hugrún Birta Egilsdóttir hefur verið valin af dómnefnd í 25 manna hóp í Miss World keppninni og mun hún því keppa til úrslita. Keppnin átti upphaflega að fara fram í Puerto Rico í desember en var frestað vegna Covid. Nú er ljóst að hún muni fara þar fram þann 16. mars næstkomandi og verður það í sjötugasta skiptið sem keppnin er haldin.

Elísa Gróa er Miss Universe Iceland 2021

Elísa Gróa Steinþórsdóttir, Miss Capital Region, var rétt í þessu krýnd Miss Universe Iceland 2021. Keppnin var sýnd í beinni útsendingu á Vísi og á Stöð 2 Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.