Tónlist

Frumsýna nýja útgáfu á sögulegu Þjóðhátíðarlagi á Vísi á morgun

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Klara og Hreimur syngja Lífið er yndislegt órafmagnað.
Klara og Hreimur syngja Lífið er yndislegt órafmagnað. Hafþór Karlsson.

Klara Elias og Hreimur frumsýna nýja og órafmagnaða útgáfu af Lífið er yndislegt hér á Lífinu á Vísi á morgun klukkan 11:30. Hreimur gerði lagið sögulegt á sínum tíma en Lífið er yndislegt er eitt þekktasta Þjóðhátíðarlag allra tíma. 

Klara mun koma til með að senda frá sér nokkrar órafmagnaðar útgáfur af Þjóðhátíðarlögum og verða tónlistarmyndböndin frumsýnd á Vísi í hádeginu á fimmtudögum fram að Þjóðhátíð.

„Ég lagði til við Ölgerðina og Tuborg að við myndum framleiða aðeins öðruvísi kynningarefni þetta árið og eitthvað sem myndi gefa fólki nýjar útgáfur og upplifun af þjóðhátíðarlögum sem þau elska. Ég ákvað að breyta þeim í dúetta, draga fram rafmagnsgítar og gera live og tiltölulega órafmagnaðar útgáfur sem er hægt að setja á þegar fólk er að koma sér í gír fyrir Þjóðhátíð,“ segir Klara.

Hér má sjá stiklu úr tónlistarmyndbandinu:

Klippa: Lífið er yndislegt - Trailer

Tengdar fréttir

Klara Elias frumflutti Þjóðhátíðarlagið 2022

Söngkonan Klara Elias er höfundur og flytjandi Þjóðhátíðarlagsins í ár. Lagið, sem heitir Eyjanótt, kom út fyrr í dag á allar helstu streymisveitur og var frumflutt í Brennslunni á FM957 í morgun.

Klara Elias er höfundur og flytjandi Þjóðhátíðarlagsins í ár

Höfundur og flytjandi Þjóðhátíðarlags Vestmannaeyja 2022 er Klara Elias söngkona og lagahöfundur. Aðeins einu sinni áður hefur hið opinbera þjóðhátíðarlag verið samið og flutt af konu og var það lagið og var það lagið Sjáumst þar eftir Röggu Gísla árið 2017.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.