Lífið

Sýningin Tinni á Íslandi opnar í Epal Gallerí

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Tinnaaðdáendur sameinaðir. Í gær opnaði myndlistarsýningin Tinni á Íslandi sem samanstendur af verkum listamannsins Óskars Guðmundssonar. 
Tinnaaðdáendur sameinaðir. Í gær opnaði myndlistarsýningin Tinni á Íslandi sem samanstendur af verkum listamannsins Óskars Guðmundssonar.  Samsett mynd

Það var mikil gleði á opnun myndlistarsýningarinnar Tinni á Íslandi í gær en myndlistarmaðurinn og rithöfundurinn Óskar Guðmundsson er maðurinn á bak við verkin. 

Miklir aðdáendur

Sýninguna opnaði að sjálfsögðu enginn annar en Tinna-aðdáandinn Gísli Marteinn en sjálfur hefur Óskar verið aðdáandi Tinna frá barnsaldri. Tinna bækurnar voru lesnar þar til kjölur þeirra gaf sig en Óskar átti þann draum heitastan að Hergé myndi senda frá sér bók sem gerðist alfarið á Íslandi. 

Það rættist svo að hluta til þegar Tinni og Kolbeinn stöldruðu stutt við á Akureyri í Dularfullu Stjörnunni. Það nægði Óskari ekki sem hefur nú málað og teiknað Tinna og félaga á fjölbreyttum stöðum í íslenskri náttúru.

Óskar hefur málað frá unga aldri og haldið nokkrar myndlistarsýningar. Hann starfar einnig sem rithöfundur og hefur sent frá sér fjórar spennusögur.

Hér fyrir neðan má sjá myndir af opnunninni en sýningin mun standa yfir til 31. júlí í Epal Gallerí. 

Listamaðurinn fær gott knús í tilefni dagsins. Elínbjörg
Bjarni virðist sáttur við Tinna á Íslandi. Elínbjörg
Gísli Marteinn hefur vafalaust verið í essinu sínu við opnuna sýningarinnar. Elínbjörg
Ásgerður Guðmundsdóttir, Óskar og Ásgerður GuðmundsdóttirElínbjörg
Kristín helga Vigfúsdóttir, Birta Lind Ragnarsdóttir og Kolbrún Pálína Helgadóttir nutu sín vel í umhverfi Tinna. Elínbjörg
Rýnt í listina. Elínbjörg
Sigríður Guðnadóttir stillti sér upp á milli verka. Elínbjörg
Ungir sem aldnir nutu nærveru Tinna á opnuninni. Elínbjörg
Sýningin Tinni á Íslandi stendur yfir til 31. júlí í Epal Gallerí. Elínbjörg
Gleðin skein af þeim Guðrúnu Björnsdóttur og Ingibjörgu Valtýsdóttur. Elínbjörg
Guðrún Friðriksdóttir lét sig ekki vanta og brosti sínu blíðasta. Elínbjörg

Bryndís og Herdís skála fyrir Tinna. Elínbjörg
Elínbjörg
Tinni listasýningElínbjörg

Tengdar fréttir

Lífið er núna: Myndaveisla frá helginni

Kraftur stóð fyrir risa perluviðburði í Hörpu þann 22. maí þar sem þátttakendur perluðu af fullum krafti armbönd sem á stendur „Lífið er núna“ og eru seld til styrktar félagsins.

Safarík myndaveisla frá frumsýningu Ávaxtakörfunnar

Ávaxtakarfan var frumsýnd um helgina í Hörpu þar sem sýningarnar munu fara fram. Einvalalið leikara fer með hlutverk ávaxtanna og grænmetisins og var líkt og Eyþór Ingi hafi aldrei gert annað en að leika sjálfumglaðan ananas.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.