Lífið

Stóðu upp og dönsuðu þegar Eyþór tók Gaggó Vest

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stuð í salnum þegar Eyþór fór í gervi Eika Hauks.
Stuð í salnum þegar Eyþór fór í gervi Eika Hauks.

Eyþór Ingi fór á kostum í þættinum Kvöldstund með Eyþóri Inga á miðvikudagskvöldið á Stöð 2.

Þættirnir verða tveir og verður seinni þátturinn á dagskrá í kvöld á Stöð 2.

Eyþór fær einvalalið tónlistarfólks sér til aðstoðar í þáttunum en á miðvikudaginn síðasta flutti hann lagið Gaggó Vest, lagið sem Eiríkur Hauksson gerði ódauðlegt árið 1986.

Stemningin í salnum var geggjuð þegar Eyþór tók lagið vinsæla og var einfaldlega staðið upp og dansað.

Hér að neðan má sjá flutninginn sjálfan.

Klippa: Eyþór Ingi - Gaggó Vest





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.