Lífið

„Þessi jafna gengur ekki upp“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Aldís fer yfir feimni í umræðu um sjálfsfróun ungra kvenna í þættinum Fávitar. 
Aldís fer yfir feimni í umræðu um sjálfsfróun ungra kvenna í þættinum Fávitar. 

Söngkonan og aktivistinn Sólborg Guðbrandsdóttir fór af stað með þættina Fávitar á Stöð 2+ efnisveitunni fyrr á árinu og eru nú þegar sex þættir aðgengilegir.

Sólborg sá um Instagram reikninginn Fávitar á árunum 2016-2020, sem var átak gegn stafrænu og annars konar kynferðisofbeldi og má segja að þættirnir hafi orðið til í kjölfarið.

Um er að ræða kynfræðsluþætti fyrir fólk á öllum aldri. Þættirnir eru framleiddir af Ketchup Creative.

Í öðrum þættinum er fjallað um fullnægingar, unað í kynlífi og sjálfsfróun. Meðal annars var talað um þá staðreynd að stelpur tali mun minna um sjálfsfróun en drengir.

„Það er búið að varpa svo mikilli skömm á því að vera kynvera, sérstaklega ef þú ert kona og síðan færðu þessa kynfræðslu sem fjallar bara um að verða þunguð eða fá kynsjúkdóm,“ segir Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir, sálfræðingur og kynlífsráðgjafi, í þættinum.

„Síðan ferðu í einskonar ferðalag að kynnast því að vera kynvera og ferð að stunda kynlíf og þá kemur upp skömm fyrir að hafa sofið hjá einhverjum. Ég skil ekki út frá þessari uppskrift hvernig við eigum að fá út í samfélegið fólk sem veit hvað það vill, veit hvað unaður er, þekkir sinn eigin líkama, þorir að biðja um það sem það vill. Þessi jafna gengur ekki upp,“ segir Aldís en í þættinum var einnig rætt um hvernig eðlileg kynfæri eru.

Hér að neðan má sjá atriðið í heild sinni.

Klippa: Þessi jafna gengur ekki upp





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.