Innlent

Katrín Jakobsdóttir er stolt af Katrínu Jakobsdóttur

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sem segist vera stolt af alnöfnu sinni, Katrínu Jakobsdóttir.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sem segist vera stolt af alnöfnu sinni, Katrínu Jakobsdóttir. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra segist vera mjög stolt af því að eiga alnöfnu á Íslandi og það gæti óneitanlega verið stundum freistandi að senda hana á ríkisstjórnarfund fyrir sig.

Við sögðum nýlega frá Katrínu Jakobsdóttur, sem býr í Lindarhverfinu í Kópavogi og starfar, sem sölumaður lyfja. Hún sagði að það gæti oft verið erfitt að vera alnafna forsætisráðherra, enda fengi hún oft boðsbréf í hinar ýmsu samkomur og fundi, en hún hefði bara gaman af þessu misskilningi, sem oft er uppi.

En hvað finnst Katrínu forsætisráðherra að eiga alnöfnu?

„Við höfum nú hist og það er bara einstaklega skemmtilegt að eiga þessa nöfnu. Einhvern tímann fékk ég nú veskið hennar sent frá Svíþjóð í ábyrgðarpósti þar sem því hafði verið stolið. Þannig að okkar leiðir skarast og munu væntanlega halda áfram að skarast í framtíðinni, en ég held að við séu bara báðar ágætar, þannig að það er allt í lagi,“ segir Katrín.

Katrín Jakobsdóttir, ekki forsætisráðherra, sem fær oft boð um að mæta í alls konar viðburði fyrir það eitt að vera alnafna forsætisráðherra. Hér er hún að taka eitt þannig símtal en leiðréttir strax við viðkomandi að hann sé ekki að tala við réttu Katrínu.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Katrín ekki forsætisráðherra segist oft fá alls konar tilkynningar um viðburði, sem hún er boðin velkomin á. Hvað finnst forsætisráðherra um það?

„Já, já, og einhvern tímann skilst mér að hún hafi mætt á einhverja slíka viðburði og ég vona bara að hún njóti vel þegar það gerist,“ segir Katrin hlæjandi

En er ekki gott að hafa svona varamann á kantinum?

„Jú, jú, hann gæti kannski bara mætt á ríkisstjórnarfund fyrir mig við tækifæri einhvern tímann,“ segir forsætisráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×