Myndband: Framkvæmdastjóri Volkswagen í sjálfkeyrandi ID Buzz Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 16. apríl 2022 07:00 ID Buzz Volkswagen kynnti nýlega hinn rafmagnaða ID Buzz. Framleiðandinn hefur nú bætt um betur og kynnt frumútgáfu af sálfkeyrandi ID Buzz sem notast við tækni frá Argo AO. Framkvæmdastjóri Volkswage, Herbert Diess, var um borð á rúntinum í Munch á dögunum.
Að sögn var Diess hrifinn af því hversu mjúkur ID Buzz var og að bíllinn var fær um að bregðast við óvæntum aðstæðum, sérstaklega þeim sem snéru að gangandi vegfarendum. Meðfylgjandi er myndband af YouTube-rás Volkswagen Group. Bílstjóri var við stýrið til öryggis og með Diess í bílnum var stjórnandi Argo AI í Munich, Alex Haag. ID Buzz var búinn sex Lidar skynjurum, ellefu radartækjum og fjórtán myndavélum. Allur þessi búnaður mataði tækni Argon AI að upplýsingum sem virtust duga til að koma ID Buzz, í gegnum rúntinn í Munich. Haag talar í myndbandinu um að gögnunum sé safnað á einn stað smíðar umhverfislíkan og sendir gögnin svo í spálíkan sem er gervigreindar hluti kerfisins. Þaðan fara upplýsingarnar svo í skipulagshluta kerfisins. Bíllinn er fær um að bregðast við hegðun gangandi vegfarenda sem mannsaugað nemur ekki á ferðinni. Erfitt er að sjá af myndbandinu hvernig ID Buzz gekk þar sem mikið viðrist vera klippt til í myndbandinu. Vonandi eru frekari myndbönd væntanlega af akstri ID Buzz. Framleiðslan á sjálfkeyrandi ID Buzz á að hefjast árið 2025. Hann gæti innihaldið afturvísandi bekk sem kemur í stað stýris og mælaborðs. Það verður áhugavert að sjá endanlega útfærslu fullsjálfkeyrandi útgáfu bílsins.
Vistvænir bílar Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent