Lífið

„Grammy verðlaunin voru ekki á radarnum mínum um raunhæfa hluti í lífinu“

Elísabet Hanna skrifar
Ólafur Arnalds er tilnefndur til tveggja Grammy verðlauna sem fara fram á sunnudaginn.
Ólafur Arnalds er tilnefndur til tveggja Grammy verðlauna sem fara fram á sunnudaginn. Aðsend

Ólafur Arnalds er tilnefndur til tveggja Grammy verðlauna og segir hann í viðtali við Billboard að slík verðlaun hafi alltaf verið honum fjarri og óraunhæfur möguleiki í lífinu. Hátíðin sjálf fer fram á sunnudaginn og eru þetta hans fyrstu tilnefningar.

Fyrstu Grammy tilnefningar Ólafs

„Grammy verðlaunin voru ekki á radarnum mínum um raunhæfa hluti í lífinu,“

sagði Ólafur í viðtalinu. Ólafur er tilnefndur fyrir tvö lög af nýjustu breiðskífu sinni Some kind of peace. Hann er tilnefndur í flokki raf- og danstónlistar fyrir lagið Loom og einnig er lagið The Bottom Line tilnefnt fyrir bestu útsetningu, hljóðfæraleik og söng.

Lagið var mótað á einum degi

Ólafur segir í viðtalinu að lagið Loom hafi orðið til á einum degi hér á Íslandi en svo gleymst í ár þar til hann var að búa til plötuna sína og hann hafi enduruppgötvað það. Þá var Covid komið og lagið klárað í rafrænum samskiptum.

Hann segir tilnefningarnar vera óraunverulegar og sjokkerandi þar sem hann hefur verið að fylgjast með verðlaununum frá því að hann var barn. Hann segist hafa hringt í mömmu sína sem hafi líka verið dolfallin. Þegar tilnefningarnar voru opinberaðar gaf tónlistarmaðurinn úr tilkynningu þar sem hann sagði meðal annars:

„Þetta er í fyrsta sinn sem ég fæ tilnefningar til Grammy-verðlauna og það er mér ótrúlegur heiður.“

Stór nöfn og mikill heiður

Aðrir tónlistarmenn í hans flokkum eru David Guetta, James Blake, Jacob Collier, Tiësto,Caribou og Bonobo sem á annað tilnefnt lag í sama flokki. Ólafur segir í viðtalinu að það væri gaman að breyta því að engir kvenkyns tónlistarframleiðendur séu tilnefndir í raf- og danstónlistar flokknum því það vanti ekki framboðið af þeim. 

Tónlistarmaðurinn Jon Batiste er með flestar tilnefningar til verðlaunanna eða alls ellefu talsins. Þar á eftir koma Justin Bieber, Doja Cat og H.E.R. með átta tilnefningar hvort. Billie Eilish og Olivia Rodrigo fylgja með sjö tilnefningar en Billie vann um helgina Óskarsverðlaunin fyrir lagið sitt No time to die sem var í samnefndri James Bond kvikmynd.


Tengdar fréttir

Ólafur Arnalds til­­­nefndur til tveggja Gram­­my-verð­­launa

Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds hlaut í dag tvær tilnefningar til hinna virtu Grammy-verðlauna fyrir tvö lög af nýjustu breiðskífu sinni some kind of peace. Platan sem kom út í fyrra hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda en þar sýnir Ólafur persónulegri hlið en hann hefur sýnt áður. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.